Viðreisn með 5,5 prósent – Björt framtíð með 3,4 prósent

Einungis 31,4 prósent landsmanna styðja ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna mælist 34,1 prósent.

7DM_0156_raw_2056.JPG
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins í nýrri könnun MMR. Fylgi flokks­ins er nú 25,6 pró­sent. Það er mjög svipað fylgi og flokk­ur­inn mæld­ist með í lok apr­íl. Vinstri græn mæl­ast sem fyrr næst stærsti flokkur lands­ins en 21,4 pró­sent kjós­enda segja að þeir myndu kjósa flokk­inn ef kosið yrði í dag. Það er tveimur pró­sentu­stigum minna fylgi en flokk­ur­inn var með fyrir mán­uði síð­an. 

Þeir tveir flokkar sem sitja með Sjálf­stæð­is­flokki í rík­is­stjórn, Við­reisn og Björt fram­tíð, halda áfram að mæl­ast með fylgi sem skilar þeim annað hvort rétt svo, eða alls ekki, mönnum á þing ef kosið yrði í dag. Við­reisn mælist með 5,5 pró­sent fylgi sem er svipað og flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með á und­an­förnum mán­uð­um. Við­reisn, sem bauð í fyrsta sinn fram í síð­ustu kosn­ing­um, fékk 10,5 pró­sent atkvæða þegar talið var upp úr kjör­köss­unum þá, og sjö þing­menn. Björt fram­tíð mælist nú með 3,4 pró­sent fylgi, sem er ekki nægj­an­legt til að skila flokknum manni á þing ef kosið yrði í dag. Fylgi Bjartrar fram­tíðar er nú á pari við fylgi Flokks fólks­ins, sem mælist með 3,2 pró­sent fylg­i. 

Píratar bæta lít­il­lega við sig á milli mán­aða og eru nú með 14 pró­sent fylgi. Fram­sókn mælist með 12,2 pró­sent og Sam­fylk­ing með 9,3 pró­sent.

Auglýsing

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina heldur áfram að vera mjög lít­ill. Annan mán­uð­inn í röð mælist hann ein­ungis 31,4 pró­sent. Hann hefur mest mælst 37,9 pró­sent í febr­ú­ar. Til sam­an­burðar mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar 59,9 pró­sent skömmu eftir að hún tók við völdum árið 2013 og stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur mæld­ist 56,1 pró­sent snemma árs 2009. 

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja, sem fengu minni­hluta atkvæða í síð­ustu kosn­ingum en samt eins manns meiri­hluta í þing­inu vegna áhrifa kjör­dæma­skip­an­inn­ar, mælist nú 34,1 pró­sent. Þeir fengu sam­tals 46,7 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ing­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent