Stjórnarskráin gerir ekki ráð fyrir að forsetinn neiti að undirrita stjórnarathöfn

Lagaprófessor segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að forseti Íslands geti hafnað skipan dómara við Landsrétt, telji hann rétt að gera það.

herasdomur_14211492377_o.jpg
Auglýsing

„Stjórn­ar­skráin gerir ekki ráð fyrir að for­seti neiti að und­ir­rita ­stjórn­ar­at­höfn. Ef hann neitar að und­ir­rita stjórn­ar­at­höfn að til­lög­u ráð­herra þá getur hún ekki tek­ið ­gild­i,“ segir Björg Thoraren­sen, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands, í við­tali við Frétta­blaðið í dag

Ríf­lega 4.200 manns hafa und­ir­rit­að á­skorun til for­seta Íslands og hvatt hann til að synja sam­þykkt Alþing­is um skipan 15 dóm­ara í Lands­rétt. 

Mik­ill hiti var í þing­heimi, en til­laga Sig­ríðar Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra var að lokum sam­þykkt, 31 atkvæði gegn 22, en Fram­sókn­ar­menn sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una. Frá­vís­un­ar­til­laga hafði áður verið felld, 31 gegn 30, en tveir þing­menn, Svan­dís Svav­ars­dóttir og Brynjar Níels­son, tóku ekki þátt í atkvæða­greiðsl­unni vegna tengsla við umsækj­endur um starf dóm­ara.

Auglýsing

 „Það er grund­vall­ar­munur á hvort ­for­seti neitar að und­ir­rita lög eða ­neitar að und­ir­rita skipun emb­ætt­is­manna því stjórn­ar­skráin gerir ráð ­fyrir að for­seti geti neitað að und­ir­rita lög. Ef for­seti neitar að und­ir­rita lög þá taka þau strax gildi og síð­an þarf að setja þau í þjóð­ar­at­kvæð­i svo þjóðin eigi loka­orð­ið. En þeg­ar ráð­herra leggur fyrir for­seta til­lög­ur til und­ir­rit­un­ar, eins og milli­ríkja­samn­inga eða til­lögu um þing­rof, er ­gert ráð fyrir að for­seti sam­þykki slíkt og und­ir­riti. Það er hins vegar ljóst að á­kvörðun getur ekki tekið gildi nema báðir und­ir­riti, ráð­herra og for­set­i,“ segir Björg í við­tali við Frétta­blað­ið.

Björg vísar til 19. greinar stjórn­ar­skrár: „Und­ir­skrift for­seta lýð­veld­is­ins undir lög­gjaf­ar­mál eða stjórn­ar­er­ind­i veitir þeim gildi, er ráð­herra rit­ar undir þau með hon­um.“ 

Dóm­ar­arnir 15 sem voru skip­aðir af Alþingi, voru Aðal­steinn E. Jón­as­son, Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, Ásmundur Helga­son, Davíð Þór Björg­vins­son, Her­vör Þor­valds­dótt­ir, Ing­veldur Ein­ars­dótt­ir, Jóhannes Sig­urðs­son, Jón Finn­björns­son, Krist­björg Steph­en­sen, Oddný Mjöll Arn­ar­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ragn­heiður Harð­ar­dótt­ir, Sig­urður Tómas Magn­ús­son, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og Þor­geir Ingi Njáls­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent