Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka meginvexti sína um 0,25 prósentustig, eða úr 4,75% niður í 4,5%. Þetta kemur fram í nýbirtri yfirlýsingu nefndarinnar.
Útlit er fyrir miklum vexti og lágri verðbólgu, en útlitið hefur lítið breyst frá síðustu spá Seðlabankans sem gerð var fyrir mánuði síðan, hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi hafi í meginatriðum verið í samræmi við hana. Vöxturinn er sem fyrr einkum drifinn af ferðaþjónustu og einkaneyslu. Auk þess er útlit fyrir töluverða slökun í aðhaldi opinberra fjármála í ár.
Verðbólgustigið hefur haldist stöðugt síðastliðið hálft ár, en undirliggjandi verðbólga virðist hafa minnkað undanfarna mánuði. Þá hafa einnig verðbólguvæntingar til skamms og langs tíma lækkað enn meir frá síðasta fundi peningastefnunefndarinnar í maí og raunvextir hækkað.Helstu þættir sem vega á móti hækkun húsnæðiskostnaðar eru lítil alþjóðleg verðbólga og hækkun gengis krónunnar.
Í yfirlýsingunni segir að enn séu skýr merki um spennu í þjóðarbúskapnum sem kalli á peningalegt aðhald svo tryggja megi verðstöðugleika til meðallangs tíma. Hækkun raunvaxta bankans frá síðasta fundi nefndarinnar hafi hins vegar falið í sér nokkuð meira aðhald en nefndin hafði stefnt að og telur nægilegt til að stuðla að verðstöðugleika.
Að lokum bendir Peningastefnunefnd á að traustari kjölfesta verðbólguvæntinga við verðbólgumarkmiðið og hækkun gengis krónunnar hafi gert henni mögulegt að ná lögboðnu markmiði um verðstöðugleika með lægri vöxtum.