Unnið er að frágangi á skýrslu nefndar um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi, þar sem meðal annars umgjörð og skilyrði fjölmiðlareksturs á Íslandi verða borin saman við önnur lönd. Þetta kemur fram í svari mennta- og menningarmálaráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans um vinnu nefndarinnar. Þar segir að samkvæmt upplýsingum frá formanni nefndarinnar hafi málið tafist meðal annars vegna gagnaöflunar erlendis frá og anna nefndarmanna. Stefnt sé að því að mennta- og menningarmálaráðherra fái niðurstöður nefndarinnar fyrir sumarleyfi.
Björgvin Guðmundsson, formaður nefndarinnar og annar eigenda almannatengslafyrirtækisins KOM, segir að drög liggi fyrir og séu í yfirlestri hjá hverjum og einum nefndarmanni. Nefndin muni koma saman á fimmtudag til að ræða breytingar og athugasemdir. „Verkefnið var að skila samhliða tillögum um breytingar til úrbóta á rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla. Drög að þeim liggja einnig fyrir en hafa ekki verið samþykktar. Þetta hefur dregist, bæði vegna anna nefndarmanna og samantektar á gögnum.“
Hafa sótt aðstoð til KOM og Gísli Freyr var undirverktaki
Að sögn Björgvins hefur nefndin engan starfsmann og þar sem nefndarmenn eru allir í öðrum störfum, og flestir að sinna nefndarstarfinu utan síns vinnutíma, þá hafi hann óskað eftir aðstoð frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu við upplýsingaöflun, aðstoð við úrvinnslu gagna, undirbúning og frágang. „Vegna anna í ráðuneyti var erfitt að koma því við en ég fór þá fram á að geta sótt aðstoð til KOM og undirverktaka þegar á þyrfti. Það hef ég gert.“ Björgvin staðfestir einnig að KOM hafi fengið Gísla Frey Valdórsson, ritstjóra Þjóðmála og fyrrverandi aðstoðarmann Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þáverandi innanríkisráðherra, til að vinna afmarkað verkefni fyrir nefndina.
Í skipanabréfi nefndarinnar kom fram að sérstök þóknananefnd ákvarði greiðslur fyrir þá vinnu sem unnin er fyrir nefndina. Því liggur ekki fyrir hvað greitt verður fyrir aðkeypta þjónustu vegna upplýsingaöflunar, aðstoð við úrvinnslu gagna, undirbúning og frágang.
Vill skoða skattaívilnanir til fjölmiðla
Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, var gestur sjónvarpsþáttarins Kjarnans um miðjan maí og ræddi þar fjölmiðlaumhverfið á Íslandi. Þar sagðist hann hafa áhyggjur af stöðu þess. „Við erum í uppsveiflu og þetta ætti að geta gengið þokkalega vel. Ég hef verulegar áhyggjur af því að þegar niðursveiflan kemur þá þrengi enn meira að þessu starfi,“ sagði hann. Kristján Þór sagðist telja það skynsamlegt að skoða rekstrarumhverfið út frá skattalega þættinum. „Skoða skattkerfið og ívilnanir þar til prentmiðla, til vefmiðla þess vegna, og svo framvegis.“
Í þættinum sagði Kristján að hann vænti þess að nefnd um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi, sem forveri hans Illugi Gunnarsson skipaði, myndi skila af sér fyrir lok maímánaðar. Þau skil hafa síðan tafist.