Tillögur um úrbætur í fjölmiðlaumhverfinu hafa ekki verið samþykktar

Nefnd um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla vinnur að lokafrágangi skýrslu. Tillögur um breytingar til úrbóta hafa ekki verið samþykktar í nefndinni, sem hefur keypt þjónustu af KOM. Gísli Freyr Valdórsson hefur unnið fyrir hana sem undirverktaki.

dagbl..nota_.jpg
Auglýsing

Unnið er að frá­gangi á skýrslu nefndar um bætt rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi, þar sem meðal ann­ars umgjörð og skil­yrði fjöl­miðla­rekst­urs á Íslandi verða borin saman við önnur lönd. Þetta kemur fram í svari mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um vinnu nefnd­ar­inn­ar. Þar segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá for­manni nefnd­ar­innar hafi málið taf­ist meðal ann­ars vegna gagna­öfl­unar erlendis frá og anna nefnd­ar­manna. Stefnt sé að því að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra fái nið­ur­stöður nefnd­ar­innar fyrir sum­ar­leyfi.

Björg­vin Guð­munds­son, for­maður nefnd­ar­innar og annar eig­enda almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­is­ins KOM, segir að drög liggi fyrir og séu í yfir­lestri hjá hverjum og einum nefnd­ar­manni. Nefndin muni koma saman á fimmtu­dag til að ræða breyt­ingar og athuga­semd­ir. „Verk­efnið var að skila sam­hliða til­lögum um breyt­ingar til úrbóta á rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Drög að þeim liggja einnig fyrir en hafa ekki verið sam­þykkt­ar. Þetta hefur dreg­ist, bæði vegna anna nefnd­ar­manna og sam­an­tektar á gögn­um.“

Hafa sótt aðstoð til KOM og Gísli Freyr var und­ir­verk­taki

Að sögn Björg­vins hefur nefndin engan starfs­mann og þar sem nefnd­ar­menn eru allir í öðrum störf­um, og flestir að sinna nefnd­ar­starf­inu utan síns vinnu­tíma, þá hafi hann óskað eftir aðstoð frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu við upp­lýs­inga­öfl­un, aðstoð við úrvinnslu gagna, und­ir­bún­ing og frá­gang. „Vegna anna í ráðu­neyti var erfitt að koma því við en ég fór þá fram á að geta sótt aðstoð til KOM og und­ir­verk­taka þegar á þyrfti. Það hef ég gert.“ Björg­vin stað­festir einnig að KOM hafi fengið Gísla Frey Val­dórs­son, rit­stjóra Þjóð­mála og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, til að vinna afmarkað verk­efni fyrir nefnd­ina.

Auglýsing

Í skip­ana­bréfi nefnd­ar­innar kom fram að sér­stök þókn­ana­nefnd ákvarði greiðslur fyrir þá vinnu sem unnin er fyrir nefnd­ina. Því liggur ekki fyrir hvað greitt verður fyrir aðkeypta þjón­ustu vegna upp­lýs­inga­öfl­un­ar, aðstoð við úrvinnslu gagna, und­ir­bún­ing og frá­gang.

Vill skoða skattaí­viln­anir til fjöl­miðla

Krist­ján Þór Júl­í­us­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, var gestur sjón­varps­þátt­ar­ins Kjarn­ans um miðjan maí og ræddi þar fjöl­miðlaum­hverfið á Íslandi. Þar sagð­ist hann hafa áhyggjur af stöðu þess. „Við erum í upp­­­sveiflu og þetta ætti að geta gengið þokka­­lega vel. Ég hef veru­­legar áhyggjur af því að þegar nið­­ur­­sveiflan kemur þá þrengi enn meira að þessu starf­i,“ sagði hann. Krist­ján Þór sagð­ist telja það skyn­­sam­­legt að skoða rekstr­­ar­um­hverfið út frá skatta­lega þætt­in­­um. „Skoða skatt­­kerfið og íviln­­anir þar til prent­miðla, til vef­miðla þess vegna, og svo fram­­veg­­is.“ 

Í þætt­inum sagði Krist­ján að hann vænti þess að nefnd um bætt rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi, sem for­veri hans Ill­ugi Gunn­ars­son skip­aði, myndi skila af sér fyrir lok maí­mán­að­ar. Þau skil hafa síðan taf­ist.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent