Valitor kaupir Chip & PIN Solutions

Valitor hefur stóreflt starfsemi sína erlendis að undanförnu.

Viðar Þorkelsson
Auglýsing

Valitor hefur gengið frá kaupum á breska fyr­ir­tæk­inu Chip & PIN Solutions, einu fram­sækn­asta fyr­ir­tæki þar í landi á sviði korta­tengdra greiðslu­miðl­un­ar­lausn­a. 

Ein­ungis tveir mán­uðir eru síðan Valitor festi kaup á öðru bresku greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæki, IPS LTD.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Valitor vegna kaupanna, en Viðar Þor­kels­son, for­stjóri Valitor, fagnar kaup­unum og segir þau mik­il­væg fyrir kom­andi upp­bygg­ingu á þjón­ustu erlend­is. „Kaupin á Chip & PIN Solutions eru stra­tegískt mjög þýð­ing­ar­mikil fyrir Valitor. Þau sýna svart á hvítu að við erum stað­ráðin í að sækja fram af krafti á þessum lyk­il­mark­aði. Chip & PIN Solutions hafa getið sér gott orð fyrir vand­aða þjón­ustu við fjöl­mennan hóp við­skipta­vina en innan þeirra raða eru skrá­sett FTSE 500 félög. Með öfl­ugt teymi starfs­manna er okkur ekk­ert að van­bún­aði að styrkja mark­aðs­hlut­deild okkar og sam­keppn­is­hæfni enn frekar á breska mark­aðn­um. Þar skiptir líka veru­legu máli að í árs­lok 2016 veitti fjár­mála­eft­ir­litið í Bret­landi Valitor svo­kallað „E-Mo­ney licence“ þar í land­i.”

Auglýsing

Kaupin á Chip & PIN Solutions eru sögð breikka til muna þann við­skipta­vina­hóp Valitor í Bret­landi sem fyr­ir­tækið þjónar milli­liða­laust. „Hinir 7.000 nýju við­skipta­vin­ir, sem nú bæt­ast við í gegnum Chip & PIN Solutions, munu njóta ávinn­ings af sér­hæfðum vörum fyrir kaup­menn, s.s. Mii-Promo vild­ar­kerf­is­ins sem Marka­d­is, dótt­ur­fé­lag Valitor, býður upp á,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í kjöl­far kaupanna munu allir við­skipta­vinir Valitor og Chip & PIN Solutions eiga kost á sam­hæfðri og straum­línu­lag­aðri greiðslu­miðl­un­ar­þjón­ustu eins og sama aðil­ans á sviði net­versl­un­ar, snjall­síma­versl­unar og versl­unar á sölu­stað.

David Maisey, stofn­andi Chip & PIN Solutions, segir fórn­fúst starf nú hafa borgað sig. Lyk­ill­inn að árangri okkar hefur falist í áherslu á afburða þjón­ustu og full­tingi við við­skipta­vini félags­ins. Eftir mikið og fórn­fúst starf í rúman ára­tug höfum við vaxið af sjálfs­dáðum upp í að verða eitt virtasta fyr­ir­tækið á þessu sviði hér í landi. Nú er komið að spenn­andi tíma­mótum þar sem tækni­leg geta Valitor og vöru­fram­boð helst í hendur við við­skipta­sam­bönd okkar og aðgengi að mark­aðn­um. Við finnum fyrir sams konar eld­móði, sam­virkni og gæða­á­herslum hjá Valitor og hlökkum til veg­ferð­ar­innar með þeim.”

Kaup­verðið er ekki gefið upp. 

Arion banki er eig­andi 99 pró­sent hluta­fjár í Valitor, í gegnum félagið Valitor Hold­ing.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent