Væntingar um að krónan sé nær hátoppi

Peningastefnunefnd Seðlabankans telur að skammtímasveiflur í gengi krónunnar megi útskýra með væntingum um að krónan sé nær hátoppi.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Auglýsing

Seðla­banki Íslands segir að skamm­tíma­sveiflur hafi auk­ist á gjald­eyr­is­mark­aði, en þær megi rekja til auk­inna fjár­magns­hreyf­inga og vænt­inga um að krónan sé nær hátoppi. Þetta kemur fram í nýbirtri skýrslu pen­inga­stefnu­nefndar til Alþing­is.

Í skýrsl­unni segir að gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans hafi numið 69,9 millj­arða króna á fyrri hluta árs­ins. Þar af keypti bank­inn gjald­eyri fyrir um 75,2 millj­arða og seldi fyrir 5,3 millj­arða króna. Við­skipti bank­ans námu 32% af veltu á gjald­eyr­is­mark­aði á þessu tíma­bili, sam­an­borið við 57% fyrir sama tíma­bil í fyrra.

Sam­kvæmt skýrsl­unni hefur flæði á gjald­eyr­is­mark­aði verið jafn­ara í báðar áttir á fyrri hluta þessa árs en á seinni hluta síð­asta árs. Því hafi veru­lega dregið úr styrk­ingu krón­unn­ar, en til dæmis hafi hún lækkað um tæp 6% á síð­ari vikum júní­mán­að­ar. 

Auglýsing

Í kjöl­far lækk­unar hefur Seðla­bank­inn tvisvar brugð­ist við með mót­væg­is­að­gerð­um, en bank­inn hefur minnkað gjald­eyr­is­forð­ann sinn til þess að kaupa krónur tvisvar það sem af er ári, í fyrsta skipti síðan árið 2014. Að sögn Seðla­bank­ans voru umræddar aðgerðir til þess að  „stöðva keðju­verkun á mark­aðn­um“.

Einnig segir að meg­in­mark­mið gjald­eyr­is­inn­gripa­stefnu Seðla­bank­ans sé að vinna gegn óhóf­legum skamm­tíma­sveiflum í gengi krón­unn­ar. Þessar sveiflur hafi aukist, en nefndin telur aukn­ing­una rekja til meiri fjár­magns­hreyf­inga og auk­inna vænt­inga um að krónan sé nær hátoppi. 

Skýrslan er ein tveggja sem nefndin gefur til Alþingis á hverju ári, en í henni er rætt um störf nefnd­ar­innar auk þess sem allar fund­ar­gerðir og opin­ber erindi eru birt. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent