Crowberry I slhf sjóðurinn hefur formlega verið stofnaður, og er stærð hans um fjórir milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu en sjóðurinn var formlega stofnaður 7. júlí.
Crowberry I slhf er samlagshlutafélag sem mun fjárfesta í ungum tækni- og þekkingarfyrirtækjum. Crowberry mun kaupa hlutafé í einstaka fyrirtækjum og eiga hlutinn í allt að 10 ár. Sjóðurinn mun kaupa hlutabréf í allt að 15 nýsköpunarfyrirtækjum á næstu árum og er stærð sjóðsins 4 milljarðar við fyrstu lokum að því er kemur fram í tilkynningu.
Fjárfestar í Crowberry I slhf eru lífeyrissjóðir (80 prósent) og einkafjárfestar (20 prósent). Rekstrarfélagið, Crowberry Capital GP ehf, sem er stofnað af þremur fyrrum starfsmönnum Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, þeim Helgu Valfells, Heklu Arnardóttur og Jennýju Ruth Hrafnsdóttur, mun sjá um rekstur Crowberry I slhf. Helga, Hekla og Jenný hafa allar víðtæka reynslu í rekstri og fjárfestingum í nýsköpunarfyrirtækjum og mun sú þekking nýtast sjóðnum vel. Starfsmenn Crowberry Capital GP munu vera virkir fjárfestar, taka sæti í stjórnum þeirra fyrirtækja sem fjárfest er í og vinna með þeim að sækja á alþjóðamarkaði.
„Við höfum unnið að undirbúningi þessa sjóðs frá því í desember 2016 og við erum þakklátar því trausti sem fjárfestar í Crowberry I slhf sína okkur. Við munum leggja okkur fram við að skila fjárfestum góðum hagnaði. Það hafa jafnframt margir úr atvinnulífinu hvatt okkur áfram og kunnum við þeim miklar þakkir,” segir Helga Valfells í tilkynningu.
Þær Helga, Hekla og Jenný Ruth segjast hlakka til þess að fjárfesta í íslensku hugviti. „Við hlökkum til að skapa verðmæti og taka þátt í uppbyggingu á fyrirtækjum framtíðarinnar með því að fjárfesta í íslensku hugviti. Það er von okkar að Íslendingar verði ekki aðeins neytendur á tækni heldur að þau taki þátt í að skapa tækni framtíðarinnar,” segir Jenny Ruth Hrafnsdóttir. „Það er gefandi að taka þátt í því að búa til arðbær fyrirtæki sem byggja á tækni og þekkingu og skapa framtíðaratvinnuvegi. Samvinna frumkvöðla og fjárfesta er mikilvæg til að árangur náist og þá getur líka ávinningurinn orðið mikill fyrir alla, ekki síst fyrir samfélagið allt,” segir Hekla.
● Crowberry Capital er 7 til 10 ára nýsköpunarsjóður
● Sjóðurinn mun kaupa hlutabréf í allt að 15 nýsköpunarfyrirtækjum á næstu árum ● Stærð sjóðsins er 4 milljarðar við fyrstu lokun
● Lífeyrissjóðir og einkafjárfestar eru bakhjarlar sjóðsins
● Mörg tækifæri í grasrót nýsköpunar
● Áhersla á tæknifyrirtæki, t.d. matvælatækni, heilbrigðistækni, orkutækni, fjármálatækni, tölvuleiki og hugbúnað til fyrirtækja.