Augljósar deilur ríkisstjórnarflokka um krónuna

Innan ríkisstjórnarinnar eru augljóslega deildar meiningar um gjaldmiðlamál.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að mál­flutn­ingur Bene­dikts Jóhann­es­son­ar, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisn­ar, um að hafna beri íslensku krón­unni, lýsi hans eigin skoðun og flokks hans, en ekki rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Ekki standi til að skipta um gjald­mið­il.

Þetta kom fram í við­tali við Bjarna á RÚV í gær­kvöldi. Hann segir að ekki standi til að skipta um gjald­mið­il, en verk­efn­is­stjórn er nú að störf­um, skipuð Ásgeiri Jóns­syni, Ill­uga Gunn­ars­syni og Ásdísi Krist­jáns­dótt­ur, sem er að meta hvaða mögu­leikar eru fyrir hendi þegar kemur að end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unn­ar. 

Í grein Bene­dikts segir hann að íslenska krónan sé upp­spretta óstöð­ug­leika í hag­kerf­inu. „Sterk króna ógnar nú afkomu fyr­ir­tækja sem græddu vel á veikri krónu fyrir fáeinum miss­er­um. Störf í nýsköpun og þekk­ing­ar­iðn­aði, sem áttu að tryggja fjöl­breytni atvinnu­lífs­ins, streyma úr landi á ný. Krónan er hem­ill á heil­brigð við­skipt­i. Við almenn­ingi blasir ólík mynd. Eftir hrunið var krónan lít­ils virði og kaup­máttur dvín­aði. Nú er öldin önn­ur. Krónan hefur náð sömu hæðum og fyrir hrun og það er lítið mál að skjót­ast á fjar­læg heims­horn. Kaup­máttur hefur auk­ist mikið á Íslandi að und­an­förnu og verk­efni næstu miss­era er að varð­veita hann. Krónan leiðir til óstöð­ug­leika, býr til sveiflur sem leiða til óábyrgra fjár­fest­ing­ar­á­kvarð­ana og óstöðugs kaup­mátt­ar. Vextir eru og verða mun hærri á Íslandi en í við­mið­un­ar­löndum vegna óstöð­ug­leika krón­unn­ar. Þetta er ósann­gjarnt og leiðir til óþarfa átaka í sam­fé­lag­in­u,“ segir Bene­dikt í grein sinni, sem birt­ist í Frétta­blað­inu á Vísi í gær. 

Auglýsing

Bene­dikt segir að sumir „krónu­vin­ir“ hafi talað um að það tæki Ísland ára­tugi að upp­fylla skil­yrði fyrir upp­töku evru, en raunin sé önnur núna. „Við­reisn var stofnuð til þess að stuðla að sátt og stöð­ug­leika. Slíkur stöð­ug­leiki næst aldrei nema með stöð­ugum gjald­miðli sem stendur undir nafni og býður upp á svip­aða vexti og í nágranna­lönd­um. Við­reisn bendir á mynt­ráð til þess að festa gengi krón­unn­ar. Mörg Evr­ópu­ríki hafa nýtt slíka lausn í ára­tugi, flest sem áfanga í því að taka upp evru. Eftir hrun töldu sumir krónu­vinir að það tæki Íslend­inga ára­tugi að upp­fylla skil­yrðin fyrir upp­töku evru. Eina skil­yrðið sem við föllum á núna er of háir vext­ir.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent