Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist sátt við að vera kölluð popúlisti. „Ég hef ákveðið að taka jákvæða pólinn í hæðina og segja, ja popúlisti er bara svona einhver svakalega vinsæll. En ég veit náttúrulega hvað hugtakið er útbreitt fyrir. Ég er sennilega svona Marine Le Pen týpa sem er verið að mála mig af þeim sem munu hvort sem er aldrei kjósa flokkinn. Af okkur stafar ógn vegna þess að við erum boðberi breytinga. Við erum einlæg og heiðarleg og við vinnum af hugsjón og við ætlum að halda því áfram og við erum bara sátt við að vera popúlistar. Ég ætla að segja að það þýði bara það að vera vinsæll í dag.“ Þetta kom fram í samtali hennar við fréttastofu RÚV.
Marine Le Pen er fyrrverandi formaður frönsku Þjóðfylkingarinnar (f. Front National) og var forsetaframbjóðandi hennar fyrr á þessu ári. Þar náði hún í aðra umferð en tapaði fyrir Emmanuel Macron. Í kosningabaráttunni lagði Le Pen áherslu á að vilja takmarka fjölda innflytjenda sem Frakkland tæki á móti og sagðist ætla að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Frakklands í Evrópusambandinu.
Árangur Le Pen í seinni umferð forsetakosninganna var sá besti sem frambjóðandi flokks hennar hafði nokkru sinni náð – hún fékk um ellefu milljónir atkvæða – en olli samt sem áður vonbrigðum. Fylgi Marine Le Pen var mest í „ryðbelti“ Norður-Frakklands og hjá íhaldssömum og öldruðum íbúum í suðausturhluta landsins.
Inga vakti nýverið athygli fyrir grein sem hún skrifaði í Morgunblaðið í júní, í kjölfar þess að sérsveit lögreglunnar hafði verið vopnuð á nokkrum viðburðum sem haldnir voru í Reykjavík. Í greininni sagði hún að Íslendingar þyrftu að viðurkenna þá ógn sem fylgjendur öfga-íslams bera með sér. Að forðast þá umræðu væri hrein og klár og afneitun. „Sérsveit lögreglunnar undir alvæpni sýnir sig á almannafæri og það án þess að hættustig sé aukið opinberlega. Hvað vita þeir sem við vitum ekki? Hvers vegna vill enginn taka umræðuna um ástandið í Evrópu og þá staðreynd að Ísland tilheyrir henni, þótt enginn hafi verið sprengdur eða myrtur hér í hryðjuverkaárás enn sem komið er? „Það er kominn tími til að taka umræðuna og löngu kominn tími til að taka á árásum þeirra samlanda okkar sem vilja og munu kalla okkur öllum illum nöfnum. Þeirra sömu og vilja breiða út faðminn og bjarga öllum heiminum.“ Mikilvægt væri að fella sig ekki á bak við „rétttrúnaðarkenningar“ og treysta því að hryðjuverkaógnin komi ekki til Íslands.
Ný könnun Gallup sýnir að flokkur hennar myndi fá 8,4 prósent atkvæða ef kosið yrði í dag og fimm þingmenn. Flokkurinn fékk 3,5 prósent atkvæða í síðustu kosningum. Næst verður kosið árið 2020 nema að boðað verði til kosninga fyrir þann tíma.
Inga segir við RÚV að hún finni fyrir ákalli um breytingar og að flokksmenn hennar séu ekki sáttir við þá stöðu sem sé uppi í samfélaginu í dag. Einungis takmarkaður þjóðfélagshópur fái að njóta þeirra gæða sem felist í boðaðri velmegun. Þriðjungur þjóðarinnar sé við og undir fátækramörkum og margar fjölskyldur séu enn í vanda, sérstaklega húsnæðisvanda, eftir hrunið 2008. Þá hafi tíu þúsund heimili verið tekið af fjölskyldum. Inga kallar eftir samstilltu átaki stjórnvalda, borgaryfirvalda og lífeyrissjóða við byggingu íbúða og segir að flokkur hennar vilji „bara gjörsamlega metta markaðinn.“
Um miðjan júlí stóð Flokkur fólksins fyrir fundi sem fór fram undir heitinu „Sumarþing fólksins“ í Háskólabíói. Húsfyllir var á fundinum en ræðumenn voru Inga Sæland, Ellert B. Schram formaður Félags eldri borgara, Ragnar Þór Ingólfsson formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur og Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness. Fundurinn var hugsaður sem hvatningarfundur í ljósi þess að þingmenn væru í löngu sumarfríi þrátt fyrir þunga undiröldu og ósk um réttlæti í samfélaginu.