Borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna sat hjá við ráðningu borgarlögmanns

Meirihlutinn í Reykjavík var ekki samstíga við ráðningu borgarlögmanns í dag. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Bjartar framtíðar greiddu atkvæði með ráðningu Ebbu Schram en Líf Magneudóttir, fulltrúi Vinstri grænna,sat hjá.

img_4755_raw_0710130572_10191392394_o.jpg
Auglýsing

Ebba Schram, sem borg­ar­ráð Reykja­víkur sam­þykkti fyrr í dag að ráð í starf borg­ar­lög­manns, var metin hæf­asti umsækj­and­inn um starfið af ráðn­ing­ar­nefnd. Einn annar sótti um það, Ást­ráður Har­alds­son hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur. Full­trúi Vinstri grænna í borg­ar­ráði, Líf Magneu­dótt­ir, sat hjá við afgreiðslu máls­ins. Það gerðu Marta Guð­jóns­dóttir og Kjartan Magn­ús­son, full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins einnig. Ráðn­ing Ebbu var því stað­fest með fjórum atkvæðum full­trúa Sam­fylk­ing­ar, Bjartrar fram­tíðar og Pírata, sem sitja í meiri­hluta í borg­inni með Vinstri græn­um, og atkvæði full­trúa Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, Svein­bjargar B. Svein­björns­dótt­ur, sem er í minni­hluta ásamt Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Þetta kemur fram í fund­ar­gerð borg­ar­ráðs­fundar sem fram fór í dag.

Því var ákvörð­unin um að ráða Ebbu, sem er hæsta­rétt­ar­lög­maður og stað­geng­ill borg­ar­lög­manns, ekki tekin eftir meiri­hluta- og minni­hluta­línum í borg­ar­ráði.

Ebba hæf­asti umsækj­and­inn

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri lagði fram til­lögu um að ráða Ebbu í starf borg­ar­lög­manns. Í til­lög­unni kemur fram að starfið hafi verið aug­lýst 17. júní síð­ast­lið­inn og að tveir hafi sótt um það áður en að umsókn­ar­frestur rann út 3. júlí. Skipuð var ráðn­ing­ar­nefnd sem í sátu Dag­ur, Ragn­hildur Ísaks­dóttir starfs­manna­stjóri Reykja­vík­ur­borgar og Stefán Eiríks­son borg­ar­rit­ari.

Umsóknir voru yfir­farnar af ráðn­ing­ar­nefnd­inni og ráð­gjafa úr mannauðs­deild Ráð­huss­ins og umsækj­endur svo boð­aðir í við­tal 12. júlí þar sem þeir fengu báðir sömu spurn­ing­ar. Í til­lög­unni sem Dagur lagði fyrir borg­ar­ráð í dag til sam­þykktar seg­ir: Að teknu til­liti til mennt­unar og reynslu sem metin var af fyr­ir­liggj­andi umsókn­ar­gögn­um, í starfsvið­tölum og með öflun umsagna var Ebba Schram metin hæf­asti umsækj­and­inn í starf borg­ar­lög­manns.“

Meiri­hlut­inn ekki ein­róma

Áður en kosið var um ráðn­ingu Ebbu lagði borg­ar­ráðs­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins fram til­lögu um að ráðn­ing­ar­ferlið yrði end­ur­skoðað og staðan aug­lýst að nýju. Það væri til­hlýði­legt í „ljósi óvand­aðrar máls­með­ferðar vegna fyr­ir­hug­aðrar ráðn­ingar borg­ar­lög­manns.“ Til­lög­unni var vísað frá með fjórum atkvæðum borg­ar­ráðs­full­trúa meiri­hlut­ans.

Auglýsing
Í kjöl­farið lögðu borg­ar­full­trúar þriggja flokka í meiri­hlut­anum – Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Bjartrar fram­tíðar – fram bókun vegna til­lögu Sjálf­stæð­is­manna þar sem meiri­hlut­inn taldi að í henni fælist „full­yrð­ing um að máls­með­ferð við ráðn­ingu borg­ar­lög­manns hafi verið óvönduð – og það óvönduð að lagt er til að allt ferlið verði tekið upp að nýju. Ekki er hægt að fall­ast á að mál­efna­leg sjón­ar­mið fyrir end­ur­upp­töku alls fer­ils­ins séu til stað­ar. Jafn­vel má leiða að því rök að end­ur­upp­taka á þessu stigi fer­ils­ins, þegar umsókn­ar­frestur er lið­inn og rætt hefur verið við umsækj­end­ur, myndi ganga í bága við góða stjórn­sýslu­hætt­i.“ Full­trúi Vinstri grænna skrif­aði sig ekki fyrir bók­un­inni.

Því næst var kosið um til­lögu um að borg­ar­ráð myndi ráða Ebbu Schram í starf borg­ar­lög­manns. Sú til­laga var sam­þykkt með fjórum atkvæðum full­trúa Sam­fylk­ing­ar, Pírata, Bjartrar fram­tíðar og Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina. Borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna sátu hjá við afgreiðslu máls­ins.

Því liggur fyrir að meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn var ekki ein­róma í sam­þykkt sinni á ráðn­ingu nýs borg­ar­lög­manns. Vinstri græn studdu ekki ráðn­ing­una.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent