Borgar Þór Einarsson, aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra, segist hafa íhugað að bjóða sig fram í leiðtogasæti á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar sem fram fara í lok maí á næsta ári. Hann hafi þó ekki tekið ákvörðun um framboð enn þá. Þetta er haft eftir Borgari í Fréttablaðinu í dag.
Þar segir einnig að Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra, sé orðuð við framboð en hún baðst undan viðtali við blaðið um málið. Halldór Halldórsson, núverandi oddviti, gaf út yfirlýsingu í vor um að hann ætlaði sér að sækjast áfram eftir oddvitasætinu. Sú ákvörðun væri óbreytt en bætti við að „vika er langur tími í pólitík“.
Fréttablaðið hafði samband við Ragnheiði Ríkharðsdóttur, fyrrverandi bæjarstjóra í Mosfellsbæ og fyrrverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, og spurði hana um framboð í borginni. Hún aftók það með öllu. Þá kemur fram í umfjöllun blaðsins að Eyþór Arnalds, sem nýverið keypti stóran hlut í Morgunblaðinu, sé sagður skoða framboð. Blaðið náði þó ekki í hann við vinnslu umfjöllunarinnar. Þá eru borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Áslaug Friðriksdóttir að skoða stöðu sína.
Greint var frá því í fjölmiðlum í gær að tillaga um að fara blandaða leið við val á lista Sjálfstæðisflokksins sem boðinn verður fram í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík á næsta ári hafi verið lögð fram fyrir stjórn Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, á fundi í vikunni. Í blandaðri leið felst að leiðtogi framboðslistann yrði kjörinn en að stillt yrði upp í önnur sæti á honum. Tillagan hefur ekki verið afgreidd.
Í Morgunblaðinu í gær var rætt við Gísla Kr. Björnsson, formann Varðar, sem sagði að innan stjórnar Varðar væri vilji til þess að sæti á listanum myndu dreifast betur meðal hverfa borgarinnar. Það væri ákall innan hverfisfélaga Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um að fólk úr viðkomandi hverfum myndi sitja á lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum, sem fara fram í lok maí 2018.
Eftir síðustu kosningar var myndaður meirihluti í Reykjavíkurborg sem samansettur er af Samfylkingu, Bjartri framtíð, Vinstri grænum og Pírötum. Könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið, sem gerð var í byrjun júní síðastliðins, sýndi að hann myndi ekki verða í neinum vandræðum með að halda ef kosið hefði verið þá. Saman mældust flokkarnir með 61,4 prósent fylgi en fengu 61,7 prósent í kosningunum 2014. Valdahlutföll innan meirihlutans myndu þó eitthvað breytast. Samfylkingin myndi til að mynda fara úr 31,9 prósent fylgi í 22,3 prósent fylgi.