Jón Steindór ætlar að fá öll gögn í æru-máli Roberts Downey

Varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar ætlar að fara fram á að fá öll gögn um uppreista æru Róberts Downey á næsta fundi nefndarinnar.

Jón Steindór Valdimarsson.
Jón Steindór Valdimarsson.
Auglýsing

Jón Stein­dór Valdi­mars­son, vara­for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar og þing­maður Við­reisn­ar, ætlar að óska eftir því að fá öll gögn um mál Roberts Dow­ney afhent á næsta fundi nefnd­ar­inn­ar. Hann seg­ist ekki hafa getað sótt fund nefnd­ar­innar í gær, þegar allir nefnd­ar­menn stjórn­ar­flokk­anna gengu af fundi þegar gögn um þá sem veittu með­mæli fyrir því að Robert Dow­ney fengi upp­reist æru voru lögð fram. Þess í stað muni hann óska eftir því á næsta fundi nefnd­ar­innar að fá „ðgang að öllum gögnum máls­ins og kynna mér þau til hlít­ar. Þannig tel ég mig, að vel ígrund­uðu máli, best fá fast land undir fætur til frek­ari umfjöll­unar um mál­ið.“

Í stöðu­upp­færslu í dag segir Jón Stein­dór að þing­menn Við­reisnar muni ekki láta sitt eftir liggja við að taka reglur um upp­reist æru til heild­ar­end­ur­skoð­unar og færa til nútíma­horfs. „Það verk­efni ætti að geta unn­ist hratt og vel í góðri sátt á Alþingi enda málið ekki í eðli sínu þannig að flokkapóli­tík eigi að tefja fyr­ir. „Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins hefur haft þessi mál til skoð­unar af gefnu til­efni sem er mál Róberts Dow­n­ey. Sjálfur sit ég í þeirri nefnd en gat ekki sótt síð­asta fund. Af fréttum að dæma og þeim upp­lýs­ingum sem ég hef aflað mér fór sá fundur ekki eins og best verður á kosið og er það mið­ur. Málið má ekki detta í far­veg póli­tískra skylm­inga og deilna sem færir umræð­una frá kjarna máls. Þeir sem líða vegna brota Róberts og ann­arra af svip­uðu sauða­húsi eiga það ekki skil­ið.“

Auglýsing

Ro­bert Dow­ney, sem hét áður Róbert Árni Hreið­ars­son, var dæmdur í þriggja ára fang­elsi árið 2008 fyrir að brjóta gegn fjórum stúlk­um, einni fjórtán ára og  þremur fimmtán ára. Hann komst í sam­band við stúlk­urnar með blekk­ingum og þótt­ist Robert vera 17 ára gam­all ung­lings­piltur sem héti Rikki í sam­skiptum við eina þeirra í gegnum net­ið. Hann greiddi tveimur stúlkn­anna fyrir kyn­mök. For­seti Íslands veitti honum upp­reist æru í sept­em­ber 2016 og í júni fékk hann lög­manns­rétt­indi sín aft­ur. 

Meiri­hluti nefnd­­ar­­manna í Stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd gekk út af fundi í gær­morgun þegar þeim var gefin nöfn þeirra sem skrif­uðu undir með­­­mæli þess efnis að Robert Dow­­ney yrði veitt upp­­reist æru. Um var að ræða alla almenna nefnd­ar­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans. Í kjöl­farið lýsti Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­maður Pírata, yfir van­­trausti á Brynj­ar Níels­­son, for­­mann nefnd­­ar­inn­­ar. 

Ótt­arr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar og heil­brigð­is­ráð­herra, tjáði sig líka um málið í morg­un. Í stöðu­upp­færslu a Face­book sagði hann upp­á­koman í nefnd­inni, þegar nefnd­ar­menn stjórn­ar­flokka gengu út, hefði virk­að„f­urðu­leg“. „ Hún þarfn­ast skýr­inga og ég skil ekki þau rök sem komið hafa fram . Það flækir og gerir erfitt fyrir því að ná saman um góð og bætt vinnu­brögð. Ef ekki er þörf á að kynna sér mál í nefnd má óska eftir frá­vísun eða frest­un. Við þurfum að vanda okkur þegar við fjöllum um við­kvæm mál. Mann­rétt­indi eru ekki flokkspóli­tísk í eðli sínu heldur verk­efni allra sem starfa í stjórn­mál­um. Það er margt ófull­komið og sumt getur verið erfitt í fram­kvæmd en það er engin afsökun fyrir því að ganga ekki til verks og ganga til góðs. Þá er borð­leggj­andi að leggja af þessar fár­an­legu reglur sem gefa í skyn að æra sé eitt­hvað sem sé á færi opin­bera aðila að möndla með eða reisa við.“ Björt fram­tíð á ekki full­trúa í nefnd­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent