Viðskiptaráð vill draga úr vægi auðlinda í utanríkisverslun

Í skýrslu sinni um íslenska hagkerfið leggur Viðskiptaráð til að Ísland leggi minni áherslu á auðlindavinnslu og meiri áherslu á hugvitsstarfsemi í framtíðinni.

Smábátahöfnin í Reykjavík. Viðskiptaráð vill minnka umfang auðlinda, svo sem fisk og ferðamennsku, í utanríkisverslun.
Smábátahöfnin í Reykjavík. Viðskiptaráð vill minnka umfang auðlinda, svo sem fisk og ferðamennsku, í utanríkisverslun.
Auglýsing

Við­skipta­ráð Íslands leggur til að minnka umfang auð­linda í útflutn­ingi lands­ins, en ráðið telur það nauð­syn­legt til þess að auka fram­leiðni og alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni til langs tíma. Þetta kemur fram í skýrslu ráðs­ins um íslenska hag­kerf­ið.

Í skýrsl­unni, sem birt var í gær, var farið yfir stjórn­mála- og efna­hags­á­standið á Íslandi og þróun þess frá fjár­mála­hrun­inu. Ein af nið­ur­stöðum skýrsl­unnar var sú að skamm­tíma­horfur væru góðar á Íslandi, en óvíst væri um efna­hags­á­standið til langs tíma.

Sam­kvæmt ­skýrsl­unn­i mun hag­vöxtur til langs tíma fyrst og fremst ráð­ast af tveimur þátt­um: Í fyrsta lagi hvort fram­leiðni muni aukast nóg til að halda uppi hag­vexti, en í  öðru lagi hvort fram­leiðsla muni ná að breyt­ast í takti við mikla upp­stokkun í heims­hag­kerf­inu.

Auglýsing

Ráðið vís­aði í McK­ins­ley-­skýrsl­una svoköll­uðu sem kom út árið 2012, en í henni kom fram að helsti veik­leiki íslenska vinnu­mark­að­ar­ins væri lág fram­leiðni vinnu­afls. 

Meiri fram­leiðni

Sam­kvæmt Við­skipta­ráði er fram­leiðni enn of lág þrátt fyrir mik­inn efna­hags­vöxt á síð­ustu árum, en hún þurfi nauð­syn­lega að aukast til þess að landið fái að njóta sjálf­bæran hag­vöxt til langs tíma. Ráðið leggur fram nokkrar ­til­lög­ur til þess að stuðla að fram­leiðni­aukn­ingu, þar á meðal opnun mark­aða fyrir erlendum fyr­ir­tækj­um, umbótum í opin­bera geir­anum og minni áherslu á vinnsla á auð­lind­um, svo sem fiski, ferða­mennsku og áli, í hag­kerf­in­u. 

Við­skipta­ráð fagnar aflétt­ingu gjald­eyr­is­hafta og segir hana mik­il­vægt skref í að opna hag­kerfið fyrir erlendri sam­keppni. Einnig stendur í skýrsl­unni að aflétt­ing haft­anna stuðli að því að íslenska hag­kerfið leggi meiri áherslu á hug­vits­starf­semi í alþjóða­við­skiptum sín­um, en það hafi verið ein af ráð­legg­ingum McK­insey-­skýrsl­unnar árið 2012.

Alda breyt­inga

Einnig bætir Við­skipta­ráð við að aukin alþjóða­væð­ing valdi því að Ísland sé við­kvæm­ari gagn­vart alþjóð­legum straumum og hrær­ingum á heims­mark­aði. Sam­kvæmt skýrsl­unni þarf Ísland að nýta sér þessa „öldu breyt­inga“ til þess að styðja við sjálf­bærni og arð­semi í fram­tíð­inn­i. 

Þeir þættir sem ráðið ráð­leggur íslenska hag­kerf­inu á að ein­beita sér að eru sjálf­virkni­væð­ing í efna­hags­líf­inu, áhersla á nýsköpun og ann­ars konar hug­vits­starf­semi í útflutn­ingi, nátt­úru­vernd og opnun hag­kerf­is­ins með skatta­lækk­unum og ein­földun reglu­verks. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent