Björn Valur hættir sem varaformaður Vinstri grænna

Nýr varaformaður verður kjörinn hjá Vinstri grænum á landsfundi í október.

Auglýsing
Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason

Björn Valur Gísla­son, sem verið hefur vara­for­maður Vinstri grænna frá því í febr­úar 2013, hefur ákveðið að hætta sem slík­ur. Frá þessu greinir hann á vef­síðu sinni. Björn Valur var síð­ast end­ur­kjör­inn vara­for­maður á lands­fundi Vinstri grænna í októ­ber 2015.

Nýr vara­for­maður verður kos­inn á lands­fundi flokks­ins sem hald­inn verður í Reykja­vík 6-8. októ­ber næst­kom­andi. Björn Valur ætlar ekki að vera í fram­boði þar.

Vinstri græn munu halda flokks­ráðs­fund á morgun laug­ar­dag þar sem línur verða lagðar fyrir stjórn­mála­vet­ur­inn framundan og fjallað sér­stak­lega um sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem fram fara í maí 2018.

í yfir­lýs­ingu sem Björn Valur birtir á heima­síðu sinni seg­ir:

„For­ystu­skipti urðu á lands­fundi Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs í árs­byrjun 2013 er Katrín Jak­obs­dóttir var kjörin for­mað­ur. Á sama tíma var ég kjör­inn vara­for­maður Vinstri grænna og hef gegnt því emb­ætti síð­an. Frá þeim tíma hefur hreyf­ingin styrkt stöðu sína veru­lega og eru Vinstri græn í dag helsta hreyfi­aflið í íslenskum stjórn­mál­um. Er það ekki síst að þakka traustri for­ystu for­manns­ins Katrínar Jak­obs­dótt­ur, öfl­ugri sveit þing- og sveit­ar­stjórn­ar­manna og sterkri mál­efna­legri stöðu Vinstri grænna.

Auglýsing

Um helg­ina fer fram flokks­ráðs­fundur Vinstri grænna og lands­fundur hreyf­ing­ar­innar verður hald­inn helg­ina 6. til 8. októ­ber næst­kom­andi. Á þessum tíma­punkti tel ég rétt að lýsa því yfir að ég mun ekki gefa kost á mér til vara­for­mennsku á kom­andi lands­fund­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent