Mikið launaskrið er hjá hinu opinbera og hafa laun einstakra hópa hækkað allt að 34% frá 2014. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag, og segir þar meðal annars að laun rúmlega 400 einstaklinga sem heyra undir kjararáð hafi hækkað um 31% frá því árið 2014. Undir kjararáð heyra æðstu stjórnendur hjá ríkinu og dótturfyrirtækjum.
Heildarlaun þeirra voru 1.144 þúsund krónur að meðaltali í lok mars. Til samanburðar var verðlag um 5,2% hærra í júlí en það var að meðaltali 2014. Þessar hækkanir eru því langt umfram verðlagsþróun í landinu, að því er segir í Morgunblaðinu.
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, segir fá dæmi um að opinberir starfsmenn á Íslandi hafi fengi svo mikla kjarabót á svo skömmum tíma. Nýtt skeið sé að hefjast í hagsveiflunni þar sem svigrúm til launahækkana verði minna en það hefur verið síðustu misseri.