Theodóra segir af sér þingmennsku um áramót

Stjórnarþingmaðurinn Theodóra S. Þorsteinsdóttir ætlar að hætta á þingi ári eftir að hún var kjörin. Hún segir þingstörfin vera eins og málstofu sem leiði sjaldnast til niðurstöðu.

theodóra
Auglýsing

Theo­dóra S. Þor­steins­dótt­ir, einn fjög­urra þing­manna Bjartrar fram­tíð­ar, ætlar að segja af sér þing­mennsku um kom­andi ára­mót. Þá verður hún ein­ungis búin að sitja sem þing­maður í rúmt ár. Hújn ætlar að ein­beita sér að störfum sínum sem odd­viti Bjartrar fram­tíðar í Kópa­vogi, þar sem flokk­ur­inn er í sveita­stjórn. Kar­ólína Helga Sím­on­ar­dótt­ir, tekur sæti Theo­dóru á Alþingi. Þetta kemur fram í við­tali við hana í Kópa­vogs­blað­inu

Sveita­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram í lok maí næst­kom­andi. Flokkur Theo­dóru, Björt fram­tíð, situr í rík­is­stjórn.

Í við­tal­inu segir Theo­dóra: „Þing­störfin hafa komið mér á óvart og snú­ast ekki, ólíkt störfum í sveit­ar­fé­lag­inu, um stefnu­mótun og fram­kvæmd verk­efna. Þau eru meira eins og mál­stofa. Flest mál sem sam­þykkt eru koma úr ráðu­neytum í gegnum rík­is­stjórn. Við þing­menn höfum svo það hlut­verk að fjalla um þau en komum hvergi að neinni stefnu­mótun eða ákvarð­ana­töku um strauma og stefn­ur. Reyndar geta þing­menn óskað umræðu um allt á milli him­ins og jarð­ar. Oft er sú umræða á flokkspóli­tískum nót­um, sett upp til að berja sér á brjóst eða berja á póli­tískum and­stæð­ing­um. Það hentar mér ekki enda leiða þær sjaldn­ast til nokk­urrar nið­ur­stöð­u.“

Auglýsing

Aðspurð hvað valdi því að hún hætti ekki strax, í ljósi þess að ákvörðun um að hætta liggi fyr­ir, segir Theo­dóra að hún vilji ljúka ákveðnum verk­efnum áður en hún stigi til hlið­ar. „Þrátt fyrir að níu ár séu liðin frá efna­hags­hrun­inu blasa við okkur mýmörg dæmi um mis­tök sem við gerðum við end­ur­reisn og upp­bygg­ingu. Fjár­mála­stofn­anir eru nú að segja fólki upp leigu á hús­næði sem það átti áður. Bank­arnir hirtu það í hrun­inu og skilja fólk eftir á göt­unni. Enn er verið að hirða eignir af fólki. Ég stóð sjálf frammi fyrir því að þurfa að höfða mál gegn Lands­bank­anum til að sækja rétt minn og í því máli komu í ljós ótrú­lega óbil­gjörn vinnu­brögð banka sem er í eigu okkar allra og í raun var þar um að ræða refsi­verð skila­svik. Ég hef enga trú á að það sé eins­dæmi. Mig langar að leggja mín lóð á vog­ar­skál­arnar til að reyna að byggja hér mann­eskju­legra sam­fé­lag. Ekki til að benda á hverjum um er að kenna heldur til að beina sjónum að því hvað við getum gert bet­ur. Ég verð ekki búin að því fyrir jól en ég á lóð sem ég held að skipti máli og ég þarf svig­rúm til að leggja þau fram.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent