„Er ætlunin að leggja niður tugþúsundir starfa?“

Formaður Framsóknarflokksins sparar ekki stóru orðin, þegar kemur að aðgerðum stjórnvalda og sauðfjárrækt.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Auglýsing

„Til­lögur land­bún­að­ar­ráð­herra er til­vilj­un­ar­kennt skot út í loftið og sýnir hve óvönduð vinnu­brögðin eru. Skotið virð­ist hafa hitt unga bændur sem er ákkúrat það fólk sem við viljum ekki missa úr grein­inn­i.“



Þetta segir Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, á Face­book­síðu sinni og vísar til aðgerða sem stjórn­völd hafa boð­að, vegna vanda sauð­fjár­bænda. 

Málið var til umræðu í sjón­varps­þætti Kjarn­ans á Hring­braut í gær­kvöld­ið, en Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, var gestur þátt­ar­ins.Gömlu leið­­irnar til að takast á við vanda sauð­fjár­­bænda, útflutn­ings­­skylda og stór­tæk upp­­­kaup á birgða­­vanda, bitna á neyt­endum og halda uppi verði inn­­an­lands. Þær þjóna hvorki bændum né neyt­end­­um. Þetta segir Þor­­gerður Katrín Gunn­­ar­s­dótt­ir, sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráð­herra, í fyrsta þætti Kjarn­ans á Hring­braut þennan vet­­ur­inn. Þátt­­ur­inn er á dag­­skrá í kvöld.

Hún ræddi um nýfram­lagðar til­­lögur sínar til að mæta vanda sauð­fjár­­bænda, sem munu kosta 650 millj­­ónir króna til við­­bótar við þá  fimm millj­­arða króna sem þeir fá í bein­greiðslur sam­­kvæmt fjár­­lögum og þær 100 millj­­ónir króna sem þeir fengu á fjár­­auka­lögum til að auka mark­aðs­­starf.

Auglýsing

Þor­­gerður sagði í þætt­inum að ef fyr­ir­sagnir fjöl­miðla aftur til árs­ins 1985 séu skoð­aðar þá séu þær allar eins varð­andi stöðu sauð­fjár­­bænda. Fram­­leiðsla sé of mikil og til að mæta henni sé áhersla lögð á að taka upp eða auka útflutn­ings­­skyldu eða að rík­­is­­sjóður ráð­ist í stór­tæk upp­­­kaup á umfram­birgð­­um. „Birgða­vand­inn í dag virð­ist vera svona svip­aður og hefur verið und­an­farin tvö þrjú ár. Þá skulum við gefa okkur tíma og gera þetta rétt, þannig að við lendum ekki alltaf í sama gamla far­inu. Það þjónar ekki bændum og það þjónar ekki neyt­end­um,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Sig­urður Ingi gagn­rýnir ráð­herra, og segir skorta grein­ingar til að takast á við vand­ann. „Engin grein­ing liggur fyrir um hvar í sam­fé­lag­inu á að fækka eða hve margir munu hugs­an­lega nýta sér þetta til­boð. Mark­mið um að draga 20% úr fram­leiðslu er orðið að 20% fækkun bænda!! Á hvaða veg­ferð er ráð­herra sauð­fjár­rækt­ar? Er ætl­unin að drepa niður sauð­fjár­fram­leiðslu, mat­væla­fram­leiðslu í land­inu og leggja niður tug­þús­undir starfa?“ segir Sig­urður Ing­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent