Samfylkingin ætlar að leggja fram frumvarp í vikunni um að veita tveimur stúlkum úr hópi hælisleitenda, Haniye og Mary, og fjölskyldum þeirra íslenskan ríkisborgararétt. Til stendur að vísa stúlkunum úr landi. Logi Einarsson, formaður flokksins, segir í stöðuuppfærslu á Facebook í gær að flokkurinn hafi þegar óskað eftir meðflutningi allra þingmanna þegar málið verði lagt fram og hafi nokkrir þegar svarað játandi. Þeir komi úr ýmsum flokkum. Þingmenn þriggja stjórnarandstöðuflokka, Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna, sendu til að mynda sameiginlega yfirlýsingu frá sér um helgina þar sem þeir mótmæltu brottvísun stúlknanna og tveir stjórnarþingmenn hafa gagnrýnt ákvörðunina opinberlega. Því virðist sem dómsmálaráðherra muni ekki geta treyst á stjórnarmeirihlutann til að fella frumvarpið komi það til atkvæðagreiðslu.
Sigríður Andersen dómsmálaráðherra sagði um helgina að ákvörðun um brottvísun stúlknanna yrði ekki endurskoðuð. Það kæmi ekki til greina. Í samtali við RÚV sagði hún: „Nei, það kemur ekki til greina að endurskoða mál sem dúkka hérna tilviljanakennt upp í umræðunni. Það kemur ekki til greina af minni hálfu sem ráðherra að taka fram fyrir hendurnar á sjálfstæðri stjórnsýslustofnun eins og kærunefnd í málum sem hafa fengið tvöfalda málsmeðferð hér á landi.“
Að minnsta kosti tveir stjórnarþingmenn hafa lýst því yfir að þeir mótmæli brottvísun stúlknanna. Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, sagði í stöðuuppfærslu á Facebook fyrir helgi að hún væri þeirrar skoðunar „að sein meðferð mála varpi enn ríkari ábyrgð á okkur varðandi það að láta mannúð ráða för frekar en ítrustu laga- og reglugerðartúlkanir. Hin nígerísku Sunday Iserien og Joy Lucky og dóttir þeirra Mary sem og afgönsku feðginin Hanyie og Abrahim Maleki eiga það t.d. skilið af okkar hálfu.
Ég styð heilshugar að þessar tvær fjölskyldur fái að halda áfram að byggja upp nýtt líf hér á landi. Að baki þeim stuðningi mínum liggja mannúðarástæður. Stundum er það einfaldlega nóg.“
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, sagði á sama vettvangi á laugardag að það mætti alltaf taka „lög eru lög“ afstöðu en þá væri „bara spurning hvernig lögin eigi að vera og ég get ekki sagt að mér finnst lögin og framkvæmd þeirra vera í lagi ef þetta er hægt. Það á að slá á frest framkvæmd þessara brottvísana og skoða í kjölfarið hvernig við tryggjum að það sem við gerum stenst Barnasáttmála SÞ.“
Ljóst er því að dómsmálaráðherra getur því ekki treyst á stjórnarmeirihlutann til að koma í veg fyrir að frumvarpið verði að lögum, komi það til atkvæðagreiðslu. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa sem stendur eins manns meirihluta á Alþingi.