Lagt upp með að „þétta raðirnar“ á landsfundi fyrir kosningar

Sjálfstæðisflokkurinn er í sárum eftir að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar féll. Bjarni hyggst bjóða sig fram til áframhaldandi forystu í flokknum.

Barni_ben_valholl_2017.png
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son hefur ekki í hyggju að hætta sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ætlar að bjóða sig fram til for­ystu­starfa fyrir flokk­inn á lands­fundi hans, sem fer fram 3. til 5. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Í við­tali við Við­skipta­blaðið segir hann að það hafi ekki komið í huga hans, að stíga alveg til hlið­ar, og ástæðan sé ekki síst sú, að það sé margt óunnið enn í lands­stjórn­inni, og þar hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlut­verk.

Hluti þingflokks og ráðherraliðs Sjálfstæðisflokksins í Valhöll.Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hefur þing­flokk­ur­inn rætt það, að mik­il­vægt sé fyrir flokk­inn að ná fljótt að græða sár, „þétta rað­irn­ar“, eins og einn við­mæl­andi komst að orði, í starfi flokks­ins og und­ir­búa kröft­ugan lands­fund, áður en síðan yrði kos­ið.

Auglýsing

Bjarni sagði á blaða­manna­fundi í Val­höll í dag, þar sem hann gerði atburða­rás­ina æsi­legu að umtals­efni, sem að lokum leiddi til falls rík­is­stjórnar hans, að honum hugn­að­ist best að kjósa í nóv­em­ber. Best væri að hleypa nú kjós­endum að sem fyrst, í ljósi stöð­unn­ar. 

Hann tal­aði enn fremur fyrir því, að nú þyrfti að koma á meiri festu í stjórn­mál­unum og sagði flokka með „djúpar ræt­ur“, sem ekki féllu við í fyrsta vindi, þurfa að koma að lands­stjórn­inni.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, mun á morgun funda með öllu for­ystu­fólki stjórn­mála­flokk­anna á Alþingi, og má búast við því að þá skýrist staða mála á hinu póli­tíska sviði. Leið­togar flokk­anna allra hafa talað fyrir því, að best sé að ganga til kosn­inga sem fyrst, og er því lík­leg­ast að það verði raunin innan ekki svo langs tíma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent