Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, lýsir yfir vonbrigðum með dómsmálaráðherra, vegna trúnaðarbrests í starfi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Heimdalli.
„Stjórn Heimdallar harmar hvernig afgreiðsla á trúnaðargögnum um uppreist æru hefur verið háttað. Mikilvægt er að hægt sé að bera traust til aðila sem sjá um meðferð slíkra mála. Einnig hvetur Heimdallur Alþingi til að fara í naflaskoðun hvað þessi mál varða, en lög um uppreist æru þarf alvarlega að endurskoða og skal það verða forgangsatriði,“ segir í yfirlýsingunni.
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er starfandi dómsmálaráðherra og því beinist gagnrýni Heimdalls að henni.
Auglýsing