Hægir á hækkunum íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu

Miklar hækkanir hafa orðið á íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu síðustu ár en í nýjustu mánaðarskýrslu Íbúðarlánasjóðs kemur fram að auknar líkur séu á að smám saman fari að draga úr verðhækkunum á fasteignamarkaði á næstu misserum.

hús íbúð fasteignir
Auglýsing

Vís­bend­ingar eru um að hægja sé á hækk­unum íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hækk­un­ar­taktur vísi­tölu íbúða­verðs náði hámarki í maí þegar fast­eigna­verð hafði hækkað um 23,5 pró­sent á einu ári. 12 mán­aða hækk­un­ar­takt­ur­inn í ágúst var aftur á móti 19,1 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúð­ar­lána­sjóðs

Í skýrsl­unni kemur fram að miklar hækk­anir fast­eigna­verðs að und­an­förnu eigi sér ákveðnar skýr­ing­ar. Aukn­ing kaup­mátt­ar, lækkun vaxta íbúða­lána og skortur á nýjum íbúðum eigi hvert um sig sinn þátt í að kynda undir verð­hækk­unum á fast­eigna­mark­aði und­an­farin miss­er­i. 

Að mati hag­deildar Íbúða­lána­sjóðs eru auknar líkur á að smám saman fari að draga úr verð­hækk­unum á fast­eigna­mark­aði á næstu miss­erum, sér í lagi ef fram­boð fast­eigna eykst í takti við þær áætl­anir sem sést hafa að und­an­förnu.

Auglýsing

Meiri sveiflur utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins

Meiri sveiflur eru í þróun fast­eigna­verðs á minni mark­aðs­svæðum en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Segja skýrslu­höf­undar að gera megi ráð fyrir að það sé að hluta til vegna sveiflna í efna­hags­að­stæðum á þeim svæðum og að hluta til vegna færri und­ir­liggj­andi kaup­samn­ingum en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Rétt sé að geta þess að vax­andi óvissa sé ætíð til staðar um þróun fast­eigna­verðs á hverjum tíma eftir því sem færri kaup­samn­ingar liggja að baki hverri mæl­ing­u. 

Frá ára­mótum 2002 til 2003 hefur íbúða­verð á Vest­fjörðum hækkað nokkuð jafnt og þétt en þó tals­vert minna en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Íbúða­verð á Aust­ur­landi tók kipp þegar stór­iðju­fram­kvæmdir þar stóðu sem hæst en lækk­aði svo nokkuð og er nú á svip­uðum slóðum að nafn­virði og þegar það var hæst árið 2006. 

Ef horft er til veg­ins fer­metra­verðs eftir svæðum kemur hins vegar fram að um er að ræða tals­vert ólík mark­aðs­svæði, höf­uð­borg­ar­svæðið ann­ars vegar og Aust­ur­land og Vest­firðir hins veg­ar. Mis­munur á meðal fer­metra­verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og minni mark­aðs­svæðum á land­inu hefur almennt farið vax­andi frá árinu 2011. Rétt sé þó að geta þess að sá mis­munur hafi einnig farið vax­andi innan mis­mun­andi hverfa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og sú þróun sé oft ólík innan hvers svæðis á lands­bygg­inn­i. 

Leigu­verð hækk­aði um 13,5% á einu ári

Frá ágúst 2016 til ágúst 2017 hækk­aði leigu­verð um 13,5 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á sama tíma hækk­aði kaup­verð á fjöl­býli um 19 pró­sent og laun um 7,2 pró­sent sam­kvæmt gögnum frá Þjóð­skrá og Hag­stof­unni. Á síð­ast­liðnum 12 mán­uðum hækk­aði leigu­verð um 7 pró­sentu­stigum hraðar en laun, sem er nokkuð skörp breyt­ing frá þró­un­inni árin á und­an. 

Reiknuð ávöxtun af útleigu íbúða sem Þjóð­skrá Íslands heldur utan um hefur almennt farið lækk­andi frá árinu 2014, sam­hliða hröðum verð­hækk­unum á kaup­hlið­inni. Með­al­á­vöxtun leigu­sala hefur þannig farið stig­lækk­andi úr 8,3 pró­sent árið 2014 í um 7,8 pró­sent í ár. 

Í skýrsl­unni kemur jafn­framt fram að þessi nei­kvæða þróun fyrir þá sem eru á leigu­mark­aði ýti enn frekar undir þörf fyrir óhagn­að­ar­drifið kerfi sem býður fólki upp á lang­tíma­leigu í öruggu hús­næði hvernig sem aðstæður mark­að­ar­ins eru þá stund­ina.

Heild­ar­fjöldi þing­lýstra leigu­samn­inga dregst saman

Fram­boð leigu­hús­næðis á almennum leigu­mark­aði hefur sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár yfir þing­lýsta leigu­samn­inga farið minnk­andi frá árinu 2014. Jafn­framt hefur hlutur ein­stak­linga í hópi leigu­sala dreg­ist tals­vert saman á und­an­förnum árum, bæði í fjölda íbúða og hvað varðar hlut­fall af heild­ar­fjölda leigu­sala á almennum mark­að­i. 

Það sem af er árinu 2017 hefur heild­ar­fjöldi þing­lýstra leigu­samn­inga dreg­ist saman um 8,1 pró­sent frá fyrra ári og þar af fjöldi ein­stak­linga í hópi leigu­sala um 11,2 pró­sent. Skýrslu­höf­undar segja að þarna spili eflaust inní bæði dvín­andi ávöxtun af útleigu íbúða á almenna leigu­mark­aðnum og aukn­ing í skamm­tíma­leigu til ferða­manna.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent