Viðskiptabankarnir eru í stakk búnir til þess að greiða allt að 240 milljarða króna í arð til eigenda í því skyni að eiginfjárhlutfall þeirra verði með svipuðu sniði og annars staðar á Norðurlöndum, samkvæmt útreikningum sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag.
Í nýlegri greiningu frá Danske Bank, um stöðu íslenska bankakerfisins, kom fram að það væri á traustum fótum, og að eiginfjárstaða þess væri ólík því sem þekkist á Norðurlöndunum. Samtals er eigin fé Arion banka, Landsbankans og Íslandsbanka um 250 milljarðar króna, en ríkið á Íslandsbanka og Landsbankann og fullu, og 13 prósent hlut í Arion banka.
Eiginfjárhlutfall fjármálastofnana, sem kallað hefur verið „almennt eigið fé þáttar 1“ (e. Common Equity Tier 1), var um 23% að meðaltali hjá íslensku bönkunum í lok annars ársfjórðungs en er um 16% að meðaltali hjá bönkum á Norðurlöndum, að því er segir í Morgunblaðinu.
Ef sú háa arðgreiðsla yrði innt af hendi, það er um 240 milljarðar króna, þá myndi arðsemi eigin fjár íslensku bankanna vera á pari við arðsemi norrænu bankanna, samkvæmt greiningu Danske Bank sem fjallað er um í Morgunblaðinu.