Lögbannið sýni að við erum að upplifa þöggun

Lögmaður Stundarinnar segir að það ástand sem lögbann á umfjöllun miðilsins hefur þegar skapað sé alvarlegt. Hún lítur svo á að Íslendingar séu nú að upplifa þöggun. Háskólaprófessor segir skilningsleysi gagnvart ábyrgð átakanlegt hérlendis.

Auglýsing

„Ég er á þeirri skoðun að jafn­vel þótt stað­fest­ing­ar­málið muni tap­ast fyrir lög­banns­beið­end­ur, sem mér finnst per­sónu­lega lík­legra heldur en hitt, að þá erum við samt sem áður núna komin í alvar­legt ástand. Þögg­unin á sér stað núna. Lög­bannið er á. Það á bara eftir að stað­festa það hjá dóm­stól­um. Lög­bannið var lagt á af full­trúa fram­kvæmda­valds­ins. Dóm­stólar hafa ekki fengið þetta mat, heldur bara full­trúi fram­kvæmda­valds­ins. Það er bara alvar­legt. Ég lít svo á að núna séum við að upp­lifa þögg­un,“ segir Sig­ríður Rut Júl­í­us­dótt­ir, lög­maður Stund­ar­innar og Reykja­vik Media í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum á Hring­braut sem er á dag­skrá klukkan 21 í kvöld.

Þar ræðir hún lög­­­bann sem sett var á frek­­ari umfjöllun Stund­­ar­innar og Reykja­vik Media sem byggir á upp­­lýs­ingum innan úr Glitni banka. Lög­bannið var sam­þykkt af sýslu­manni síð­ast­lið­inn mánu­dag.

Auglýsing
Jón Ólafs­son, pró­fessor við Háskóla Íslands og stjórn­for­maður Gagn­sæ­is, er einnig gestur þátt­ar­ins. Hann segir að Gagn­sæi, sem eru sam­tök gegn spill­ingu, hafi lagt áherslu á að hér­lendis ríki skiln­ings­leysi á ábyrgð og eðli opin­berra emb­ætta, og að það skiln­ings­leysi sé bein­línis átak­an­legt. „Það kemur fram í því að stjórn­mála­menn eru hvað eftir annað að taka algjör­lega vit­lausar ákvarð­anir um hvernig þeir eiga að umgang­ast við­kvæm stór­mál og spilla þar með trausti fyrir sér og kerf­inu í heild sinni. Ég held að í mörgum til­fellum sé það ekki þannig að það sé ein­hver ann­ar­leg sjón­ar­mið að baki heldur meira þrjóska, skiln­ings­leysi og vilja­leysi til þess að vinna með sam­fé­lag­inu, vinna með frjálsum félaga­sam­tökum til að finna leið­irnar til að bæta kerf­ið.“

Hægt er að sjá brot úr þætti kvölds­ins í spil­ar­anum hér að ofan. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent