Bjarni var í miklum samskiptum við Glitni frá 2003 og fram yfir hrun

Bjarni Benediktsson segir að það hafi verið eðlilegt að hann hefði átt í miklum samskiptum við Glitni á árunum fyrir hrun. Hann hafi verið þátttakandi í viðskiptalífinu og félög hans hafi verið stórir viðskiptamenn Glitnis.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var í miklum sam­skiptum við starfs­menn og stjórn­endur Glitnis í gegnum net­fang sitt hjá Alþingi og net­fang sem hann not­aði í störfum sínum fyrir eign­ar­halds­fé­lagið BNT hf. frá árinu 2003 og fram yfir hrun. Þetta kemur fram í gögnum sem frétta­stofa RÚV hefur undir höndum og greint var frá í kvöld. Allan þann tíma sem sam­skiptin stóðu yfir var Bjarni þing­mað­ur.

Bjarni segir við RÚV að lang­best sé að hafa skýr skil á milli við­skipta­þátt­töku og stjórn­mála. Hann hafi dregið þá línu fyrir löngu, en Bjarni til­kynnti að hann hefði dregið sig út úr öllum við­skiptaum­svifum í lok árs 2009, skömmu áður en að hann var kjör­inn for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Bjarni segir að í ljósi þess að hann hafi verið þátt­tak­andi í við­skipta­líf­inu á þessum tíma þá hafi svona mikið og per­sónu­leg sam­skipti við Glitni verið eðli­leg. Hann hafi verið stjórn­ar­for­maður BNT og stjórn­ar­maður í öðrum fyr­ir­tækjum sem voru stórir við­skipta­menn Glitn­is.

Í frétt RÚV kemur fram að í  skýrslu sem KPMG vann fyrir slita­stjórn Glitnis í lok árs­ins 2008 þá hafi Fjár­mála­eft­ir­litið skil­greint alla þá sem komu að und­ir­bún­ingi þjóð­nýt­ingar á Glitni í lok sept­em­ber 2008 sem inn­herja. Þar á meðal voru þing­menn, emb­ætt­is­menn og ýmsa ráð­gjafa. Nafn Bjarna Bene­dikts­sonar var á þeim lista. Frétta­stofa RÚV segir hins vegar að ekk­ert komi fram í gögnum sem hún hafi undir höndum sýni að Bjarni hafi framið lög­brot með við­skiptum sín­um.

Auglýsing

Í frétt RÚV segir að það hafi virst hafa skipt Glitni máli að Bjarni var alþing­is­maður á sama tíma og hann átti í við­skiptum við, eða í gegn­um, bank­ann. Þetta hafi til að mynda birst í tölvu­póst­sam­skiptum starfs­manns Glitnis við hinn breska Barclays banka vegna við­skipta BNT hf. í Bret­landi árið 2006. Þar til­greinir starfs­maður Glitnis í London sér­stak­lega að Bjarni sé þing­maður þegar hann gefur upp­lýs­ingar um stjórn­endur BNT.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent