Verð hækkaði einungis um 0,17 prósent í október sem er minnsta hækkun milli mánaða í rúm tvö ár eða frá því í júní 2015. Þar af hækkaði verð á sérbýli um 0,3 prósent og verð á fjölbýli um 0,1 prósent. Hækkanir frá fyrra ári eru á hraðri leið niður en eftir sem áður mjög miklar. Í gær birti Þjóðskrá Íslands tölur um fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu í október og greint er frá því í Hagsjá Landsbankans.
Samkvæmt tölum Þjóðskrár hefur verð á fjölbýli hækkað um 17 prósent á síðustu 12 mánuðum og verð á sérbýli um 19 prósent. Heildarhækkunin nemur 17,6 prósent, sem er eilítið meira en í síðasta mánuði.
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 4,5 prósent á síðustu sex mánuðum en hækkaði um 12,5 prósent næstu sex mánuði þar á undan.
Segir ennfremur í Hagsjá að raunverð fasteigna hafi hækkað nær stöðugt frá því í upphafi ársins 2013 en lækki nú örlítið milli mánaða. Verðbólga hefur verið lítil og stöðug síðustu misseri og því hefur raunverð fasteigna hækkað mun meira en ella. Að undanskildum húsnæðiskostnaði hefur ríkt verðhjöðnun í hagkerfinu frá því um mitt ár 2016. Vísitala neysluverðs án húsnæðis í nýliðnum október var þannig 2,3 prósent lægri en í október 2016. Raunverð fasteigna hefur því hækkað um rúm 20 prósent á einu ári, frá október 2016 til október 2017.
Sé litið á fjölda viðskipta með íbúðarhúsnæði má sjá að þróunin hefur verið mjög sveiflukennd á síðustu mánuðum, greinir . Fjölda viðskipta með fjölbýli hefur frekar fækkað allt frá því í nóvember 2016, þó með stökkum upp á við inn á milli, t.d. nú í október.
Tölur um fjölda viðskipta fyrir fjölbýli eru þannig mun lægri en fyrir ári síðan.
Sé fjöldi viðskipta yfir lengri tíma skoðaður má sjá að tími samfellds vaxtar milli ára er liðinn, að minnsta kosti í bili. Sé meðalfjöldi viðskipta á þessu ári borinn saman við sömu stærðir á síðustu árum má sjá að töluvert hefur dregið úr viðskiptum bæði með fjölbýli og sérbýli, eða sem nemur rúmum níu prósentustigum.
Íbúðum til sölu fjölgar á þessu ári
Íbúðum til sölu á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað nokkuð á þessu ári og magnið er nú svipað og það var á seinni hluta ársins 2015. Þá hefur sölutími fasteigna einnig lengst. Hvort tveggja ætti að geta stuðlað að meiri ró á markaðnum, að mati hagfræðideildar Landsbankans.
„Töluverð umræða hefur verið um mögulega kólnun fasteignamarkaðarins eftir að nokkuð dró úr verðhækkunum í sumar. Litlar hækkanir áttu hins vegar einungis við um fjölbýli á þessum tíma; hækkanir á sérbýli voru áfram miklar. Nú í október voru verðhækkanir litlar á bæði fjölbýli og sérbýli sem styrkir þá skoðun að tímabili mikilla verðhækkana fasteigna fari að linna,“ segir í greininni.
Jafnframt segir að eftir sem áður beri að undirstika að ætíð sé varasamt að túlka breytingar milli einstakra mánaða. En sé litið yfir lengra tímabil nú, til dæmis með því að bera saman síðustu sex mánuði og sex mánuði þar á undan lítur út fyrir að tímabil hóflegri verðhækkana sé runnið upp.