Guðrún Johnsen látin hætta í stjórn Arion banka – Steinunn tekur sæti hennar

Fyrrverandi framkvæmdastjóri Glitnis í Bretlandi er komin í stjórn Arion banka. Hún er tilnefnd af Attestor Capital.

Guðrún Johnsen
Auglýsing

Guð­rún Johnsen, sem hefur verið vara­for­maður stjórnar Arion banka, hefur verið látin hætta í stjórn bank­ans. Sæti hennar tekur Stein­unn Kristín Þórð­ar­dótt­ir, sem hefur verið vara­maður í stjórn­inni. Hún er til­nefnd í stjórn­ina af Kaup­skil­u­m. 

Þetta var ákveðið á hlut­hafa­fundi Arion banka sem fram fór fimmtu­dag­inn 30. nóv­em­ber.

Stjórn Arion banka skipa nú: Eva Ceder­balk for­mað­ur, Brynjólfur Bjarna­son, Jakob Már Ásmunds­son, John P. Madd­en, Kirstín Þ. Flygenring, Måns Höglund, Stein­unn Kristín Þórð­ar­dóttir og Þóra Hall­gríms­dótt­ir. Kirstín er full­trúi Banka­sýslu rík­is­ins í stjórn­inni, Stein­unn er til­nefnd að Attestor Capital, en aðrir eru til­nefndir af Kaup­skil­um.

Auglýsing

Í frétta­til­kynn­ingu frá Arion banka segir að Stein­unn Kristín hafi starfað sem fram­kvæmda­stjóri hjá Ber­in­ger Fin­ance á árunum 2015-2017, fyrst í Nor­egi og síðar á Íslandi auk þess að gegna stöðu for­stöðu­manns alþjóða­deildar fyr­ir­tæk­is­ins á sviði mat­væla og sjáv­ar­fangs. Árið 2010 stofn­aði Stein­unn ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Akton AS í Nor­egi og var fram­kvæmda­stjóri þess til árs­ins 2015. Hún starf­aði hjá Íslands­banka, sem þá hét Glitn­ir, á árunum 2001-2008, fyrst sem for­stöðu­maður alþjóða­lán­veit­inga og síðar sem fram­kvæmda­stjóri bank­ans í Bret­land­i. 

Stein­unn er með MIM gráðu frá Thund­er­bird og BA gráðu í alþjóða­við­skiptum og stjórn­mála­fræði frá Uni­versity of South Carol­ina.

Vog­un­ar­sjóðir stórir í eig­enda­hópnum

Í mars var til­­­kynnt að fjórir aðil­­­ar, vog­un­­­ar­­­sjóð­irn­ir Taconic Capi­­talOch-Ziff Capi­­talMana­­gementAttestor Capi­­tal og fjár­­­­­fest­inga­­­bank­inn Gold­man Sachs hefðu keypt sam­tals 29,18 pró­­­­sent hlut í Arion banka af Kaup­­­­þingi á 48,8 millj­­­­arða króna. Verðið sem greitt var fyrir er um 0,8 krónur á hverja krónu af bók­­­­færðu eigin fé Arion banka.

Þegar samið var um stöð­u­­­­leika­fram­lög setti íslenska ríkið inn ákvæði þess efnis að það gæti gengið inn í við­­­­skipti með hluti í Arion banka ef gengið yrði lægra en 0,8 af bók­­­­færðu eigin fé bank­ans. Í því sam­komu­lagi var líka samið um að Kaup­­­­­­þing þurfi að selja hlut sinn í Arion banka fyrir árs­­­­­­lok 2018. Ef það myndi ekki tak­­­­­ast myndi rík­­­­­­is­­­­­­sjóður leysa bank­ann til sín.

Í við­­­­skipt­unum fólst því að eig­endur ⅔ hluta Kaup­­­­þings voru að kaupa stóran hluta í Arion banka á eins lágu verði og mög­u­­­­legt var fyrir þá án þess að virkja ákvæði sem gerði íslenska rík­­­­inu kleift að ganga inn í kaup­in.

Til við­­­­bótar átti þessi hópur kaup­rétt á 21,9 pró­­­­sent hlut í Arion banka. Hefðu þeir nýtt hann yrðu vog­un­­­­ar­­­­sjóð­irnir þrír og Gold­man Sachs beinir eig­endur að meiri­hluta í Arion banka. 

Þessir fjórir aðilar keyptu hlut­inn í Arion banka af Kaup­­­­þingi ehf. eiga líka sam­tals 66,31 pró­­­­sent hlut í Kaup­­­­þingi. Langstærsti ein­staki eig­andi Kaup­­­­þings eru sjóðir í stýr­ingu Taconic Capi­­tal með 38,64 pró­­­­sent eign­­­­ar­hlut.  Næst stærsti eig­and­inn er lúx­em­­borgískt félag tengd Och-Ziff Capi­­tal Mana­­gement Group með 14,21 pró­­­­sent eign­­­­ar­hlut. Þriðji stærsti hóp­­­­ur­inn eru sjóðir í stýr­ingu hjá Attestor Capi­­tal, sem eiga 8,63 pró­­­­sent hlut. Fjár­­­­­­­fest­inga­­­­bank­inn Gold­man Sachs og sjóður í stýr­ingu hans eru síðan skráðir fyrir 4,83 pró­­­­sent hlut. Því er ljóst að sjóð­irnir voru að selja sjálfum sér hluti í Arion banka. Og beinn og óbeinn hlutur þeirra í bank­­­anum er sam­an­lagt mun hærri en sá hlutur sem keyptur var.

 Í ágúst var til­kynnt að þeir ætl­uðu sér ekki að nýta sér kaup­rétt á 21,9 pró­­sent hlut sem þeir höfðu samið um, og þurftu að nýta fyrir 19. sept­­em­ber.

Til stóð að Arion banki yrði skráður á mark­aði í októ­ber eða nóv­em­ber en því var frestað vegna kosn­inga á Íslandi. Stefnt er að því að af skrán­ing­unni verði á fyrsta árs­fjórð­ungi 2018.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent