Heitavatnsnotkun aldrei verið meiri í nóvember

Kalt hefur verið í veðri undanfarnar vikur og hefur heitavatnsnotkun því aldrei verið meiri í nóvember.

Krani
Auglýsing

Aldrei hefur meira verið notað af vatni úr hita­veitu Veitna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í nóv­em­ber­mán­uði en nú í ár. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­in­u. 

Skýr­ing­una telja þau vera að mán­uð­ur­inn hafi verið frekar kaldur og storma­samur undir lok­in. Um 90 pró­sent af heita vatn­inu fer til hús­hit­unar og í nóv­em­ber runnu tæpir níu millj­arðar lítra af heitu vatni inn í hús frá Hafn­ar­firði í suðri til Mos­fells­bæjar í norðri. Það er 15 pró­sent meira magn en sama mánuð í fyrra.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Veð­ur­stof­unnar var nóv­em­ber kald­ur. Með­al­hiti í Reykja­vík mæld­ist 0,2 stig, -0,9 stigum neðan með­al­lags áranna 1961 til 1990 og -2,6 stigum neðan með­al­lags síð­ustu tíu ára. Aug­ljóst sam­hengi er því á milli tíð­ar­fars­ins og heita­vatns­notk­un­ar­inn­ar.

Auglýsing

Íslensk heim­ili nota árlega að með­al­tali 4 til 5 tonn af heitu vatni á hvern fer­meter hús­næð­is. Í til­kynn­ing­unni segir að til að spara og lækka reikn­ing­inn hjá sér sé lík­legt til árang­urs að hafa hita­kerfi og ofna rétt stillt fremur en til dæmis að fækka bað­ferð­um. Ein bað­ferð kosti ekki mikið en hund­rað- og þús­und­kall­arnir geti fljótt safn­ast upp ef bilun er í kerfi, ofnar rangt stillt­ir, illa ein­angrað eða gluggar sífellt upp á gátt.

Heita vatnið sem notað er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kemur ann­ars vegar frá lág­hita­svæðum í Mos­fellsbæ og Reykja­vík, nánar til­tekið í Laug­ar­nes­inu og Elliða­ár­dal og hins vegar frá háhita­svæðum á Nesja­völlum og nýjasta við­bótin kom á árinu 2010 þegar heita­vatns­fram­leiðsla hófst í Hell­is­heið­ar­virkj­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent