Sif Konráðsdóttir og Orri Páll Jóhannsson hafa verið ráðin aðstoðarmenn Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra. Þau hefja störf á næstu dögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
Sif Konráðsdóttir lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1988. Hún starfaði sem sérfræðingur á ríkisaðstoðarsviði Eftirlitsstofnunar EFTA í Brussel 2008 - 2015 en var áður sjálfstætt starfandi lögmaður í Reykjavík og hefur undanfarin tvö ár starfað við lögmennsku og ráðgjöf á sviði matvælaöryggis og umhverfismála, m.a. fyrir Landvernd.
Sif hefur verið stundakennari við HÍ og á lögmannanámskeiðum og sinnt margháttuðum trúnaðar- og félagsstörfum fyrir lögmannastéttina og íslensk stjórnvöld. Hún var meðal stofnenda félags kvenna í lögmennsku og fyrsti formaður þess.
Sif er gift Ólafi Valssyni, dýralækni, og eiga þau samtals fjögur börn og tvö barnabörn.
Orri Páll Jóhannsson er búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og með BSc-gráðu í vistfræði og stjórnun náttúrusvæða frá Umhverfis- og lífvísindaháskóla Noregs á Ási. Undanfarið hefur hann einnig stundað meistaranám í hagnýtri siðfræði, með áherslu á umhverfis- og náttúrusiðfræði, við Háskóla Íslands.
Orri Páll hefur undanfarin ár starfað sem landvörður og var m.a. starfandi þjóðgarðsvörður á vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs frá janúar 2016 til júní 2017. Þá var hann verkefnisstjóri Skóla á grænni grein (Grænafánaverkefnisins) hjá Landvernd frá 2008 til 2012. Hann er varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi suður og á sæti í flokksráði og stjórn Reykjavíkurfélags VG.
Orri Páll er í sambúð með Jóhannesi Elmari Jóhannessyni Lange.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra réð Iðunni Garðarsdóttur aðstoðarmann sinn í velferðarráðuneytinu á dögunum og Lísa Kristjánsdóttir og Bergþóra Benediktsdóttir voru ráðnar aðstoðarmenn Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra.
Enn eru sömu aðstoðarmenn hjá ráðherrum Sjálfstæðisflokksins og í síðustu ríkisstjórn.
Ráðherrar Framsóknar eiga eftir að ráða sína aðstoðarmenn.