Sif og Orri Páll aðstoðarmenn umhverfis- og auðlindaráðherra

Guðmundur Ingi Guðbrandsson hefur ráðið sér aðstoðarmenn sem munu hefja störf á næstu dögum.

Sif Konráðsdóttir og Orri Páll Jóhannsson.
Sif Konráðsdóttir og Orri Páll Jóhannsson.
Auglýsing

Sif Kon­ráðs­dóttir og Orri Páll Jóhanns­son hafa verið ráðin aðstoð­ar­menn Guð­mundar Inga Guð­brands­son­ar, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra. Þau hefja störf á næstu dög­um. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­inu.

Sif Kon­ráðs­dóttir lauk emb­ætt­is­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands 1988. Hún starf­aði sem sér­fræð­ingur á rík­is­að­stoð­ar­sviði Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA í Brus­sel 2008 - 2015 en var áður sjálf­stætt starf­andi lög­maður í Reykja­vík og hefur und­an­farin tvö ár starfað við lög­mennsku og ráð­gjöf á sviði mat­væla­ör­yggis og umhverf­is­mála, m.a. fyrir Land­vernd.

Sif hefur verið stunda­kenn­ari við HÍ og á lög­manna­nám­skeiðum og sinnt marg­hátt­uðum trún­að­ar- og félags­störfum fyrir lög­manna­stétt­ina og íslensk stjórn­völd. Hún var meðal stofn­enda félags kvenna í lög­mennsku og fyrsti for­maður þess.

Auglýsing

Sif er gift Ólafi Vals­syni, dýra­lækni, og eiga þau sam­tals fjögur börn og tvö barna­börn.

Orri Páll Jóhanns­son er búfræð­ingur frá Land­bún­að­ar­há­skól­anum á Hvann­eyri og með BSc-gráðu í vist­fræði og stjórnun nátt­úru­svæða frá Umhverf­is- og líf­vís­inda­há­skóla Nor­egs á Ási. Und­an­farið hefur hann einnig stundað meist­ara­nám í hag­nýtri sið­fræði, með áherslu á umhverf­is- og nátt­úrusið­fræði, við Háskóla Íslands.

Orri Páll hefur und­an­farin ár starfað sem land­vörður og var m.a. starf­andi þjóð­garðs­vörður á vest­ur­svæði Vatna­jök­uls­þjóð­garðs frá jan­úar 2016 til júní 2017. Þá var hann verk­efn­is­stjóri Skóla á grænni grein (Græna­fána­verk­efn­is­ins) hjá Land­vernd frá 2008 til 2012. Hann er vara­þing­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og á sæti í flokks­ráði og stjórn Reykja­vík­ur­fé­lags VG.

Orri Páll er í sam­búð með Jóhann­esi Elmari Jóhann­essyni Lange.

Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra réð Iðunni Garð­ars­dóttur aðstoð­ar­mann sinn í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu á dög­unum og Lísa Krist­jáns­dóttir og Berg­þóra Bene­dikts­dóttir voru ráðnar aðstoð­ar­menn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­sæt­is­ráð­herra.

Enn eru sömu aðstoð­ar­menn hjá ráð­herrum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og í síð­ustu rík­is­stjórn. 

Ráð­herrar Fram­sóknar eiga eftir að ráða sína aðstoð­ar­menn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent