Konráð S. Guðjónsson hefur verið ráðinn hagfræðingur Viðskiptaráðs. Hann hefur starfað sem sérfræðingur í greiningardeild Arion banka undanfarin þrjú ár. Konráð tekur við starfinu af Kristrúnu Frostadóttur sem hefur ráðið sig sem aðalhagfræðingur Kviku banka. Konráð mun hefja störf 15. janúar næstkomandi.
Ásta S. Fjelsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir að ráðið sé afar spennt fyrir því að fá Konráð til starfa. Hann hafi góða reynslu og bakgrunn sem hæfi starfinu. „Um leið þökkum við Kristrúnu fyrir vel unnin störf og gleðjumst yfir því að starfsfólk ráðsins sé svo eftirsótt sem raun ber vitni."
Hjáa greiningardeild Arion banka vann Konráð að ýmsum greiningum og skýrslum á íslensku efnahagslífi, t.d. um ferðaþjónustu, húsnæðismarkað, krónuna og vaxtaþróun.
Þar áður starfaði Konráð um hríð sem hagfræðingur á skrifstofu forsetans í Tansaníu, hjá Hagfræðistofnun og sem starfsnemi hjá Þróunarsamvinnustofnun í Úganda. Hann skrifaði einnig greinar fyrir Kjarnann um tíma. Þá hefur Konráð kennt hagfræði fasteignamarkaðarins við Endurmenntun Háskóla Íslands og veitt leiðsögn við laxveiði svo eitthvað sé nefnt.
Konráð er með meistaragráðu í hagfræði frá Warwick háskóla og með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands.