Hækkun á persónuafslætti og hækkun á tekjumörkum í efra skattþrepi um liðin áramót gerir það að verkum að ráðstöfunartekjur hátekjufólks aukast um 78 þúsund krónur á ári en lág- og millitekjufólk fær um 12 þúsund krónur á ári vegna breytinganna. Þetta er niðurstaða útreikninga Alþýðusambands Íslands (ASÍ) á áhrifum skattbreytinganna.
Í tilkynningu ASÍ vegna málsins segir að um áramót hafi persónuafsláttur hækkað til samræmis við hækkun á verðlagi undanfarið ár en efri tekjumörk hækkuðu til samræmis við launavísitölu, eins og lög geri ráð fyrir. „Alþýðusambandið hefur ítrekað vakið athygli á þessu ósamræmi í framkvæmd skattkerfisins, sem leiðir kerfisbundið til aukins tekjuójafnaðar. Þannig nam hækkun persónuafsláttur 1,9 prósent, hann fór úr 52.907 kr. í 53.895 kr. Á sama tíma hækkuðu tekjumörk í efra skattþrepi um 7,1 prósent og greiðist tekjuskattur í efra skattþrepi nú af tekjum yfir 893.713 krónur á mánuði í stað 834.707 kr. áður.“
ASÍ segir að þróun persónuafsláttar hafi meiri áhrifi á skattbyrði eftir því sem tekjur eru lægri og myndi í raun skattleysismörk að óbreyttu skatthlutfalli, sem líta megi á sem fyrsta þrep tekjuskattskerfisins. „Tekjumörk í efra skattþrepi hafa hins vegar einungis áhrif á skattbyrði tekjuhærri hópa. Þannig má segja að tekjumörkin í fyrsta þrepi (skattleysismörkin) hafi um áramót hækkað úr 143.224 krónum á mánuði í kr. 145.899 eða um 1,9 prósent á sama tíma og tekjumörkin í efra þrepi hækkuðu úr 834.707 kr. í 893.713 kr. eða um 7,1 prósent.“
Misræmið valdi því að ráðstöfunartekjur hátekjufólks aukist mun meira en ráðstöfunartekjur þeirra sem eru með minni tekjur. „Þannig lækkaði sem dæmi staðgreiddur tekjuskattur og útsvar hjá einstaklingi með 350.000 krónur í mánaðarlaun um áramótin úr 71.211 krónum á mánuði í kr. 70.223 krónur og ráðstöfunartekjur þessa einstaklings jukust þannig um 988 krónur á mánuði eða 11.800 krónur á ári sem samsvarar 0,3 prósent aukningu ráðstöfunartekna. Ef litið er á hag þeirra sem eru með tekjur yfir efri tekjumörkunum skattkerfisins, þ.e. yfir 893.713 kr.,lækkar staðgreiddur tekjuskattur og útsvar hins vegar mun meira hjá þeim eða um 6.476 krónur á mánuði. Ráðstöfunartekjur þeirra hækka því um ríflega 77.700 krónur á ári, sem samsvarar t.a.m. 0,9 prósent aukningu ráðstöfunartekna hjá einstaklingi sem hefur 1.000.000 kr. mánaðarlaun.“