Birting Morgunblaðsins á afriti af símtali milli Davíðs Oddssonar, fyrrverandi seðlabankastjóra, og Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, þar sem þeir ræða um neyðarlánsveitingu til Kaupþings þann 6. október 2008, er enn til athugunar innan Seðlabanka Íslands. Sú athugun hefur staðið yfir frá 20. nóvember.
Samkvæmt svari bankans við fyrirspurn Kjarnans um stöðu málsins þá er athuguninni enn ekki að fullu lokið. „Ferill málsins hefur verið skoðaður og eins athugað hverjir utan bankans kunna að hafa fengið endurritið með réttmætum hætti. Við getum á þessari stundu ekkert fullyrt um það hvernig endurritið rataði til fjölmiðla,“ segir í svarinu.
Birt níu árum síðar
Morgunblaðið birti þann 18. nóvember afrit af umræddu símtali. Í símtalinu ræða þeir neyðarlánalánveitingu til Kaupþings upp á 500 milljónir evra, sem kostaði íslenska skattgreiðendur á endanum 35 milljarða króna í tap.
Kjarninn hafði óskaði eftir því með tölvupósti þann 6. september 2017 að fá aðgang að hljóðritun af samtalinu og afritið sem gert var. Tilgangurinn var að upplýsa almenning um liðna atburði og vegna þess að framundan var birting á tveimur skýrslum, þar af önnur sem unnin er af Seðlabankanum, þar sem atburðir tengdir símtalinu verða til umfjöllunar. Beiðnin var rökstudd með því að um væri að ræða einn þýðingarmesta atburð í nútíma hagsögu sem hefði haft í för með sér afdrifaríkar afleiðingar fyrir íslenskan almenning. Seðlabankinn hafnaði beiðninni þann 14. september og byggði þá ákvörðun einvörðungu á því að þagnarskylda hvíldi yfir umræddum upplýsingum.
Kjarninn ákvað í kjölfarið að stefna Seðlabanka Íslands fyrir dómstóla til að reyna að fá ákvörðun Seðlabankans hnekkt og rétt sinn til að nálgast ofangreindar upplýsingar viðurkenndan á grundvelli upplýsingalaga.
Seðlabanki Íslands ákvað að taka til varna í málinu og var það þingfest. Áður en kom að fyrirtöku þess gerðist það hins vegar að Morgunblaðið birti afrit af símtalinu. Davíð Oddsson er í dag ritstjóri Morgunblaðsins.
Dómsmátt og endurrit afhent
Í framhaldinu náðist samkomulag milli Kjarnans miðla, móðurfélags Kjarnans, og Seðlabanka Íslands um dómsátt í málinu. Í dómsáttinni sagði að fyrir liggi „að endurrit af símtali því sem stefnandi krefst aðgangs að í máli þessu frá stefna birtist í Morgunblaðinu eftir þingsetningu málsins þ.e. 18. nóvember sl. Eru því ekki efni til þess lengur að synja stefnanda um afhendingu þess. Stefndi mun því afhenda það til stefnanda. Í þeirri athöfn felst engin viðurkenning á réttmæti málatilbúnaðar stefnanda í málinu.“