Seðlabankinn getur enn ekkert fullyrt um hvernig símtalið rataði til fjölmiðla

Athugun Seðlabanka Íslands á því hvernig neyðarlánasímtalið milli Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde rataði á síður Morgunblaðsins stendur enn yfir. Búið er að fara yfir feril málsins og athuga hverjir utan bankans hafi fengið endurritið.

davíð og geir davíð oddsson geir haarde
Auglýsing

Birt­ing Morg­un­­blaðs­ins á afriti af sím­tali milli Dav­­íðs Odds­­son­­ar, fyrr­ver­andi seðla­­banka­­stjóra, og Geirs H. Haarde, fyrr­ver­andi for­­sæt­is­ráð­herra, þar sem þeir ræða um neyð­­ar­lánsveit­ingu til Kaup­­þings þann 6. októ­ber 2008, er enn til athug­unar innan Seðla­banka Íslands. Sú athugun hefur staðið yfir frá 20. nóv­em­ber.

Sam­kvæmt svari bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um stöðu máls­ins þá er athug­un­inni enn ekki að fullu lok­ið. „Fer­ill máls­ins hefur verið skoð­aður og eins athugað hverjir utan bank­ans kunna að hafa fengið end­ur­ritið með rétt­mætum hætti. Við getum á þess­ari stundu ekk­ert full­yrt um það hvernig end­ur­ritið rataði til fjöl­miðla,“ segir í svar­inu.

Birt níu árum síðar

Morg­un­­­blaðið birti þann 18. nóv­em­ber afrit af umræddu sím­tali. Í sím­tal­inu ræða þeir neyð­­­ar­lána­lán­veit­ingu til Kaup­­­þings upp á 500 millj­­­ónir evra, sem kost­aði íslenska skatt­greið­endur á end­­­anum 35 millj­­­arða króna í tap.

Auglýsing

Kjarn­inn hafði óskaði eftir því með tölvu­­­pósti þann 6. sept­­­em­ber 2017 að fá aðgang að hljóð­­­rit­un­ af sam­tal­inu og afritið sem gert var. Til­­­­­gang­­­ur­inn var að upp­­­lýsa almenn­ing um liðna atburði og vegna þess að framundan var birt­ing á tveimur skýrsl­um, þar af önnur sem unnin er af Seðla­­­bank­an­um, þar sem atburðir tengdir sím­tal­inu verða til umfjöll­un­­­ar. Beiðnin var rök­studd með því að um væri að ræða einn þýð­ing­­­ar­­­mesta atburð í nútíma hag­­­sögu sem hefði haft í för með sér afdrifa­­­ríkar afleið­ingar fyrir íslenskan almenn­ing. Seðla­­­bank­inn hafn­aði beiðn­­­inni þann 14. sept­­­em­ber og byggði þá ákvörðun ein­vörð­ungu á því að þagn­­­ar­­­skylda hvíldi yfir umræddum upp­­­lýs­ing­­­um.

Kjarn­inn ákvað í kjöl­farið að stefna Seðla­­­banka Íslands fyrir dóm­stóla til að reyna að fá ákvörðun Seðla­­­bank­ans hnekkt og rétt sinn til að nálg­­­ast ofan­­­greindar upp­­­lýs­ingar við­­­ur­­­kenndan á grund­velli upp­­­lýs­inga­laga.

Seðla­­banki Íslands ákvað að taka til varna í mál­inu og var það þing­­fest. Áður en kom að fyr­ir­töku þess gerð­ist það hins vegar að Morg­un­­blaðið birti afrit af sím­tal­inu. Davíð Odds­­­son er í dag rit­­­stjóri Morg­un­­­blaðs­ins.

Dómsmátt og end­ur­rit afhent

Í fram­hald­inu náð­ist sam­komu­lag milli Kjarn­ans miðla, móð­­ur­­fé­lags Kjarn­ans, og Seðla­­banka Íslands um dómsátt í mál­inu.  Í dómsátt­inni sagði að fyrir liggi „að end­­ur­­rit af sím­tali því sem stefn­andi krefst aðgangs að í máli þessu frá stefna birt­ist í Morg­un­­blað­inu eftir þing­­setn­ingu máls­ins þ.e. 18. nóv­­em­ber sl. Eru því ekki efni til þess lengur að synja stefn­anda um afhend­ingu þess. Stefndi mun því afhenda það til stefn­anda. Í þeirri athöfn felst engin við­­ur­­kenn­ing á rétt­­mæti mála­til­­bún­­aðar stefn­anda í mál­in­u.“

Hér að neðan er hægt að sjá afritið sem Seðla­banki Íslands afhenti Kjarn­anum í kjöl­far­ið:

Endurrit af símtali Davíðs og Geirs, síða 1.

Endurrit af símtali Davíðs og Geirs, síða 2.

Endurrit af símtali Davíðs og Geirs, síða 3.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent