Skúli Helgason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar sem fram fer í febrúar. Hann sat í fimmta sæti á framboðslista flokksins í kosningunum 2014. Skúli hefur verið formaður skóla- og frístundaráðs á því kjörtímabili sem nú fer brátt að ljúka.
Fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík samþykkti á laugardag að valið yrði á framboðslista fyrir borgarstjórnarkosningar í vor með flokksvali. Það mun fara fram 10. febrúar. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, hefur þegar gefið það út að hann ætli að bjóða sig fram að nýju og mun nær örugglega leiða lista flokksins.
Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi, hafði áður tilkynnt að hún sækist eftir stuðningi í 2. sæti framboðslista flokksins. Hún var í sjötta sæti á framboðslista flokksins í kosningunum árið 2014 og náði ekki kjöri sem aðalmaður í borgarstjórn. Heiða Björg kom hins vegar inn í borgarstjórn þegar Björk Vilhelmsdóttir, sem var í 2. sæti á lista flokksins í síðustu borgarstjórnarkosningum, ákvað að hætta í stjórnmálum haustið 2015.
Búist er við því að Hjálmar Sveinsson, sem sat í þriðja sæti listans 2014, bjóði sig aftur fram og muni sækjast eftir sæti ofarlega á lista. Þá hefur borgarfulltrúinn Kristín Soffía Jónsdóttir einnig gefið það út að hún sé að velta áframhaldandi framboði fyrir sér.