Ríkisstjórnin skipar starfshóp um endurskoðun kjararáðs

Starfshópur um kjararáð á meðal annars að taka úrskurði kjararáðs til skoðunar og kanna hvort að til sé annað fyrirkomulag sem leiði til betri sáttar.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur 2017
Auglýsing

Rík­is­stjórnin hef­ur, að höfðu sam­ráði við heild­ar­sam­tök á vinnu­mark­aði, ákveðið að skipa starfs­hóp um kjara­ráð. Starfs­hóp­ur­inn skal ljúka störfum eigi síðar en 10. febr­úar næst­kom­andi.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu á hóp­ur­inn að bera saman „fyr­ir­komu­lag um ákvörðun launa hjá kjörnum full­trú­um, dóm­urum og emb­ætt­is­mönnum í nágranna­löndum og  leggja fram til­lögur að breyttu fyr­ir­komu­lagi launa­á­kvarð­ana kjara­ráðs, sé annað fyr­ir­komu­lag talið lík­legra til betri sáttar í þjóð­fé­lag­inu til fram­tíðar um ákvörðun launa þeirra sem stöðu sinnar vegna njóta ekki samn­ings­rétt­ar.“

Auk þess á starfs­hóp­ur­inn að taka til skoð­unar úrskurði kjara­ráðs, meta með hlið­sjón af launa­setn­ingu og launa­breyt­ingum þeirra stétta sem samn­ings­frelsis njóta og þeirri launa­stefnu sem samið var um við meg­in­þorra launa­fólks og eftir atvikum leggja fram til­lögur um úrbæt­ur.

Auglýsing

For­maður hóps­ins er Jóhannes Karl Sveins­son. Auk hans sitja í hópnum fyrir hönd rík­is­ins Bene­dikt Árna­son, skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyti, Guð­rún Þor­leifs­dótt­ir, skrif­stofu­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti  og Hanna Sig­ríður Gunn­steins­dótt­ir, skrif­stofu­stjóri í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu.

Fyrir hönd aðila vinnu­mark­að­ar­ins sitja þau Hannes G. Sig­urðs­son aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins, Helga Jóns­dóttir fram­kvæmda­stjóri BSRB og Magnús Norð­dahl lög­fræð­ingur ASÍ.

Laun ráða­manna, þing­manna og bisk­ups hækk­uðu um tugi pró­senta

Mikið launa­skrið er hjá hinu op­in­bera og hafa laun ein­stakra hópa hækkað allt að 34% frá 2014.  Laun rúm­­­lega 400 ein­stak­l­inga sem heyra und­ir kjara­ráð hafi hækkað um 31% frá því árið 2014. Undir kjara­ráð heyra æðstu stjórn­­endur hjá rík­­inu og dótt­­ur­­fyr­ir­tækj­­um.

Mesta athygli hafa vakið ákvörðun kjara­ráðs frá því í októ­ber 2016, þegar ráðið ákvað að hækka laun for­­seta Íslands, þing­far­­ar­­kaup alþing­is­­manna og laun ráð­herra..

Sam­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­ar­­kaup alþing­is­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­sæt­is­ráð­herra að með­­­töldu þing­far­­ar­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­arra ráð­herra að með­­­töldu þing­far­­ar­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­­lega 1,5 millj­­ónir en laun for­­seta voru tæpar 2,5 millj­­ón­­ir.

Laun þing­­­manna hækk­­­uðu hlut­­­falls­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­sent.

Í des­em­ber hækk­aði kjara­ráð svo laun bisk­­ups, Agn­­esar Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, um tugi pró­­senta. Í úrskurð­i vegna þessa kom fram að biskup skuli hafa tæp­­lega 1,2 millj­­ónir í mán­að­­ar­­laun auk 40 fastra yfir­­vinn­u­ein­inga. Ein ein­ing er 9.572 krónur og laun bisk­­ups því eftir hækkun alls 1.553.359 krónur á mán­uði.

Hækk­­unin var aft­­ur­­virk til 1. jan­úar 2017, sam­­kvæmt úrskurð­in­­um. Um ára­mót fékk biskup því ein­greiðslu fyrir síð­­asta árið en sú upp­­hæð nemur 3,3 millj­­ónir króna.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent