Forsætisráðherra leggur línurnar í stjórnarskrármálum

Forsætisráðherra hefur birt minnisblað þar sem farið er yfir feril endurskoðun stjórnarskrárinnar, í samstari allra flokka á Alþingi.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Auglýsing

For­sæt­is­ráð­herra hefur birt minn­is­blað, þar sem lín­urnar eru lagðar fyrir end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar og rammi um feril máls­ins er mark­að­ur. 

Gert er ráð fyrir að núgild­andi stjórn­ar­skrá verði end­ur­skoðuð í heild á þessu og næsta kjör­tíma­bili. „Mark­miðið er að þegar þess­ari heild­stæðu yfir­ferð er lokið end­ur­spegli íslenska stjórn­ar­skráin sem best sam­eig­in­leg grunn­gildi þjóð­ar­innar og renni traustum stoðum undir lýð­ræð­is­legt rétt­ar­ríki þar sem vernd mann­rétt­inda er tryggð,“ segir í minn­is­blað­inu.

Þá er gert ráð fyrir að allir flokkar hafi aðkomu að vinn­unni, sem verði áfanga­skipt. Þá kemur einnig fram að til hlið­sjónar verði vinna sem unnin hefur verið á und­an­förnum árum, þegar kemur að end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­inn­ar. „Hlið­sjón verður höfð af þeirri miklu vinnu sem lögð hefur verið í end­ur­skoðun á und­an­förnum árum, sbr. t.d. þjóð­fund, stjórn­laga­nefnd og stjórn­laga­ráð auk starfa stjórn­ar­skrár­nefnda 2005-2007 og 2013-2016, þeirri miklu sam­fé­lags­legu umræðu sem átt hefur sér stað, umræðu og nefnda­vinnu á Alþingi auk afstöðu kjós­enda að því marki sem hún hefur þegar komið fram. Sú áætlun sem hér er lögð fram er metn­að­ar­full og felur í sér skuld­bind­ingu um heild­ar­end­ur­skoðun á afmörk­uðu tíma­bili. Ekki er fyr­ir­fram gefið hvaða mál­efni eru þess eðlis að þörf sé talin á breyt­ingum eða að sam­staða náist um þær. Áætl­unin mun sæta reglu­legri end­ur­skoðun varð­andi til dæmis röð við­fangs­efna, til­högun vinnu og tíma­frest­i,“ segir í minn­is­blað­inu.

Auglýsing

Dæmi um verkferil málsins, eins og hann er teiknaður upp í minnisblaðinu.

Þá er einnig get ráð fyrir ítar­legri yfir­ferð á hverjum kafla stjórn­ar­skrár­inn­ar, og að kerf­is­bundið verði farið í gegnum þá eftir þeim tímara­mma sem mark­aður verð­ur, það er á þessu kjör­tíma­bili og því næsta.

Sjá má minn­is­blaðið í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent