Eyþór Laxdal Arnalds sigraði örugglega í oddvitaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fór í dag. Lokatölur voru birtar á vef flokksins laust fyrir ellefu í kvöld.
Alls greiddu 3.826 atkvæði en Eyþór hlaut af þeim 2320, sem gera tæp 61 prósent.
Áslaug María Friðriksdóttir fékk 788 atkvæði eða 20,2 prósent, Kjartan Magnússon 460 atkvæði eða 11,8 prósent. Þá fékk Vilhjálmur Bjarnason 193 atkvæði eða 4,9 prósent og Viðar Guðjohnsen 65 atkvæði eða 1,6 prósent.
Í samtali við Kjarnann eftir fyrstu tölur sagði Eyþór að tölurnar sýni meiri stuðning en hann hefði látið sig dreyma um. „Það eru bara tvær vikur síðan á ákvað að kýla á þetta og það er greinilegt að þær áherslur sem ég er með eiga hljómgrunn hjá borgarbúum,“ segir hann.
Eyþór segir oddvitaprófkjörið stórt, margir sem taka þátt og niðustaðan, verði hún með þessum hætti, sýni vel hvert hugur fólks stefnir í borgarmálunum. „Ég er bara auðmjúkur gagnvart því að hafa fengið svona mikið fylgi í þetta og ætla mér að standa undir þessu trausti eins vel og ég get,“ segir Eyþór.