86 missa vinnuna hjá Odda

Miklar breytingar er fyrirhugaðar hjá Odda á næstu mánuðum. Innlendri framleiðslu plast- og bylgjuumbúða verður hætt og áhersla lögð á innflutning umbúða og eflingu prentverks og öskjuframleiðslu.

Pappi
Auglýsing

Umfangs­miklar breyt­ingar munu eiga sér stað hjá Odda á næstu mán­uðum þar sem fyr­ir­tækið mun hætta inn­lendri fram­leiðslu á plast- og bylgju­um­búð­u­m. 86 manns munu missa vinn­una hjá fyr­ir­tæk­inu sam­hliða breyt­ing­un­um.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu sem send var út í dag. 

Breyt­ing­arnar hafa í för með sér að á næstu mán­uðum verður fram­leiðslu hætt í verk­smiðj­unum Plast­prenti og Kassa­gerð­inni og þess í stað lögð áhersla á að efla mið­læga starf­semi Odda í inn­flutn­ingi umbúða­lausna, prent- og öskju­fram­leiðslu og sölu og þjón­ustu við við­skipta­vini.

Auglýsing

Jafn­framt kemur fram í til­kynn­ing­unni að Oddi muni efla vöru­úr­val og þjón­ustu við við­skipta­vini með áherslu á sölu inn­fluttra umbúða í sam­starfi við öfl­uga erlenda birgja og bjóða upp á þekk­ingu, ráð­gjöf og sölu umbúða­lausna sem þró­aðar eru sam­kvæmt þörfum við­skipta­vina. Einnig verði inn­lend prent- og öskju­fram­leiðsla Odda efld. Breyt­ing­unum sé ætlað að tryggja fram­tíð Odda á íslenskum mark­aði með því að styrkja og efla félagið til langs tíma á grunni ára­tuga þekk­ingu á umbúðum og prent­verki.

„Við lögun starf­sem­innar að breyttum aðstæðum leggj­ast af 83 störf við fram­leiðslu og afleidd störf og fækkað verður um þrjá í fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn og stjórn­endum Odda þykir leitt að sjá á eftir því góða og reynslu­mikla starfs­fólki sem nú skilur við fyr­ir­tækið vegna þess og lögð verður áhersla á að veita því stuðn­ing og aðstoð við næstu skref með virð­ingu fyrir hverjum ein­stak­lingi í huga.

Und­an­farin ár hefur orðið hröð nei­kvæð þróun á starfs­um­hverfi íslenskra fram­leiðslu­fyr­ir­tækja, sem m.a. má rekja til þess að sterkt gengi íslensku krón­unnar og launa­hækk­anir langt umfram það sem þekk­ist í sam­keppn­is­löndum hafa veikt mjög sam­keppn­is­stöðu inn­lendrar fram­leiðslu. Oddi hefur ekki farið var­hluta af þeirri þróun og mikið umbóta­starf hefur þegar verið unnið innan fyr­ir­tæk­is­ins til að bregð­ast við breyttum aðstæð­u­m,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Krist­ján Geir Gunn­ars­son fram­kvæmda­stjóri sölu- og mark­aðs­sviðs Odda segir að starfs­um­hverfi fyr­ir­tækja eins og Odda sem eru í beinni sam­keppni við erlenda fram­leiðslu hafi verið að þyngj­ast jafnt og þétt und­an­farin ár. „Það er auð­vitað ekki eini áhrifa­vald­ur­inn en hefur mikið að segja um nið­ur­stöð­una og við teljum okkur þurfa að bregð­ast skýrt við breyttum aðstæðum í rekstr­inum núna til að tryggja við­skipta­vinum okkar áfram þau gæði og þjón­ustu sem Oddi stendur fyr­ir. Þetta er grund­vall­ar­breyt­ing á starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og það er vissu­lega áhuga­verð vinna fram undan við að byggja upp nýjan Odda. Á þess­ari stundu leggjum við hins vegar höf­uð­á­herslu á að aðstoða okkar góða starfs­fólk sem skilur við Odda í kjöl­far breyt­ing­anna eins og við get­um. Það er algert for­gangs­mál í okkar huga.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent