Unnur Brá leiðir stjórnarskrárvinnu

Forsætisráðherra hefur falið Unni Brá Konráðsdóttur að vera verkefnisstjóri við endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Unnur Brá Konráðsdóttir var áður forseti Alþingis.
Unnur Brá Konráðsdóttir var áður forseti Alþingis.
Auglýsing

Unnur Brá Kon­ráðs­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­seti Alþingis og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verður verk­efna­stjóri vinnu við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­inn­ar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Í áætlun sem for­sæt­is­ráð­herra hefur kynnt um fyr­ir­komu­lag stjórn­ar­skrár­vinnu næstu árin seg­ir: „Verk­efn­is­stjór­inn hefur heild­ar­yf­ir­sýn yfir verk­efnið og tengir saman helstu aðila sem að því koma. Hann er málsvari verk­efn­is­ins og leit­ast við að tryggja skil­virkan fram­gang þess. Hann starfar í umboði for­sæt­is­ráð­herra, er tengiliður milli ráð­herra og sér­fræð­inga­nefndar og nýtur aðstoðar skrif­stofu lög­gjaf­ar­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­in­u.“ Sér­fræð­inga­nefndin verður sett á lagg­irnar í sam­ráði þeirra flokka sem full­trúa eiga á Alþingi.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að mik­ill akkur sé í því að fá reynslu­mik­inn lög­fræð­ing með bak­grunn úr stjórn­mál­um, sem að auki njóti trausts þvert á flokka og í sam­fé­lag­inu, til að stýra þessu vanda­sama verk­efni næstu árin. „Mark­miðið er að ná fram áföngum við heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar á þessu kjör­tíma­bili og því næsta. Við munum leita allra leiða til að sjón­ar­mið almenn­ings vísi veg­inn í þess­ari vinnu og sem flestir geti tekið þátt í að móta breyt­ing­ar­til­lög­ur. Fram­tíð­ar­sýnin er að stjórn­ar­skráin end­ur­spegli sem best sam­eig­in­leg grunn­gildi þjóð­ar­innar og renni traustum stoðum undir lýð­ræð­is­legt rétt­ar­ríki þar sem vernd mann­rétt­inda er tryggð,“ segir Katrín.

Auglýsing

Unnur Brá lauk emb­ætt­is­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Hún tók sæti á Alþingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn árið 2009 en hafði áður meðal ann­ars starfað sem sveit­ar­stjóri Rangár­þings eystra. Unnur Brá gegndi for­mennsku í alls­herj­ar­nefnd 2013-2016 og var for­seti Alþingis árið 2017. Nú situr hún á Alþingi sem vara­þing­mað­ur.

Unnur Brá mun hefja störf í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu 1. apríl næst­kom­andi. Hún verður ráðin sem aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar, sam­kvæmt lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent