Stýrivextir Seðlabanka Íslands verða áfram 4,25 prósent samkvæmt ákvörðun Peningastefnunefndar hans sem kynnt var í morgun.
Í yfirlýsingu nefndarinnar er sérstaklega fjallað um að verðbólga í janúar hafi aukist úr 1,9 prósent í 2,4 prósent og að sú hækkun sé fyrst og fremst vegna hækkunar á húsnæðisverði á landsbyggðinni.„Undirliggjandi verðbólga jókst einnig nokkuð. Undanfarið hálft ár hefur dregið úr verðhækkun húsnæðis en áhrif hærra gengis krónunnar farið dvínandi. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næstunni. Gengið hefur lítið breyst frá síðasta fundi peningastefnunefndar enda hefur gjaldeyrismarkaðurinn verið í ágætu jafnvægi. Horfur eru á að verðbólga verði nálægt markmiði á spátímanum og verðbólguvæntingar hafa á heildina litið einnig verið í samræmi við það um nokkurt skeið.“
Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans, sem birt er í febrúarhefti Peningamála sem gert var opinbert í morgun, verður hagvöxtur áranna 2017 og 2018 heldur minni en spáð var í nóvember. „Stafar það einkum af því að útflutningur jókst hægar í fyrra en gert var ráð fyrir en á móti vegur hraðari vöxtur innlendrar eftirspurnar bæði árin. Það skýrist aðallega af meiri fjárfestingu og minna aðhaldi í opinberum fjármálum,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.
Peningastefnunefnd segir að hátt raungengi hafi hægt á vexti útflutnings og horfur eru á minnkandi spennu í þjóðarbúskapnum. „Eigi að síður er áfram þörf fyrir peningalegt aðhald til að halda aftur af örum vexti innlendrar eftirspurnar, m.a. í ljósi þess að horfur eru á minna aðhaldi í opinberum fjármálum en áður var gert ráð fyrir. Þá ríkir enn óvissa um niðurstöðu kjarasamninga.“