Reykvísk ungmenni sofa of lítið

Í nýrri rannsókn kemur fram að einungis 22,9 prósent unglinga í 10. bekk í 6 grunnskólum í Reykjavík náðu viðmiðum um ráðlagða svefnlengd.

Þótt margir Danir séu skráðir einir í búsetu þá þýðir það ekki að þeir sofi allir einir. Margir þeirra eiga auðvitað kærustur eða kærasta.
Auglýsing

Svefn og hreyf­ing eru mik­il­vægir áhrifa­þættir heilsu­fars. Reglu­leg hreyf­ing á ung­lings­árum minnkar líkur á áunnum og lang­vinnum lífs­stíls­sjúk­dómum síðar á ævinni. Um helm­ingur þátt­tak­enda í rann­sókn á svefni og hreyf­ingu ung­linga náði við­miðum um hreyf­ingu sam­kvæmt nið­ur­stöðum spurn­inga­lista. Þrátt fyrir að 51,9 pró­sent teldu sig sofa nógu mikið náðu þó ein­ungis 22,9 pró­sent við­miðum um ráð­lagða svefn­lengd.

Þetta kemur fram í nýrri rann­sókn sem greint var frá í Lækna­blað­inu á dög­un­um.

Í umfjöll­un­inni segir að alþjóð­legar ráð­legg­ingar mæli með því að börn og ung­lingar hreyfi sig að lág­marki 60 mín­útur dag­lega af miðl­ungs eða mik­illi ákefð og sofi í 8 til 10 klukku­stundir á sól­ar­hring. Enn fremur segir að tengsl hreyf­ingar og svefns meðal ung­menna séu ekki vel þekkt.

Auglýsing

Engin tengsl milli svefn­lengdar og hreyf­ingar

Mark­mið rann­sókn­ar­innar voru í fyrsta lagi að meta hversu hátt hlut­fall 16 ára reyk­vískra ung­menna upp­fyllir við­mið um hreyf­ingu og svefn, í öðru lagi hvort tengsl séu milli hreyf­ingar og svefns og í þriðja lagi að kanna kynja­mun á hreyf­ingu og svefni.

Alls var 411 nem­endum 10. bekkjar 6 grunn­skóla í Reykja­vík boðin þátt­taka í rann­sókn­inni vorið 2015. Gild gögn feng­ust frá 106 drengjum og 160 stúlk­um.

Í nið­ur­stöð­unum kemur fram að engin tengsl hafi fund­ist milli svefn­lengdar og hreyf­ingar sam­kvæmt spurn­inga­list­um. Stúlkur hreyfðu sig mark­tækt meira en drengir á frí­dögum sam­kvæmt hröð­un­ar­mælum en ekki var mark­tækur munur á með­al­tali hreyf­ingar stúlkna og drengja yfir vik­una. Hvorki var mark­tækur kynja­munur á svefn­lengd mældri með hröð­un­ar­mælum né spurn­inga­lista.

Hreyf­ing og nægur svefn hefur góðar afleið­ingar

Sam­kvæmt hlut­lægum mæl­ingum árið 2013 upp­fylltu aðeins 9 pró­sent 15 ára íslenskra ung­linga við­mið um dag­lega hreyf­ingu, en drengir hreyfðu sig meira en stúlkur af miðl­ungs- eða mik­illi ákefð. Æski­legt er talið að ung­menni sofi í 8 til 10 klukku­tíma á sól­ar­hring. Ríf­lega helm­ingur banda­rískra ung­menna er tal­inn leggja sig á dag­inn vegna syfju, segir í umfjöllun Lækna­blaðs­ins. 

Þar kemur enn fremur fram að aukin hreyf­ing sé talin tengj­ast eða leiða til betri svefns. Rann­sóknum á ung­lingum beri saman um að hreyf­ing hafi jákvæð áhrif á svefn­lengd þeirra. Einnig hafi komið fram að börn á aldr­inum 10 til 12 ára sem fylgja svefn­ráð­legg­ingum séu lík­legri til að við­halda reglu­legum og heil­brigðum hreyfi­venj­um. Nýleg sam­an­tekt­ar­grein hafi ályktað að börn og ung­lingar sem hreyfa sig mik­ið, sofa vel og eru í lít­illi kyrr­setu hafi ákjós­an­legra magn lík­ams­fitu og séu í betra formi en þau ung­menni sem eru í meiri kyrr­setu, hreyfa sig lítið og sofa minna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent