Virði eigna Heimavalla yfir 50 milljarðar og eigið féð 17,6 milljarðar

Leigufélagið Heimavellir hefur vaxið hratt á síðustu árum.

hús íbúð fasteignir
Auglýsing

Leigu­fé­lagið Heima­vell­ir, sem er á leið á skráðan markað mán­að­ar­mótin mar­s/a­pr­íl, var með eignir upp á 53,6 millj­arða í lok árs í fyrra og var aukn­ingin milli ára 12,9 millj­arðar króna. Rekstr­ar­hagn­aður nam 2,7 millj­örðum en var 2,2 millj­arðar árið 2016. 

Leigu­tekjur á árinu 2017 voru rúm­lega þrír millj­arð­ar, sem er tvö­földun frá árinu 2016. Mats­breyt­ing á virði eigna, meðal ann­ars vegna hækk­andi fast­eigna­mats, nam 3,8 millj­örðum króna, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá félag­in­u. 

Í árs­lok í fyrra átti félagið rúm­lega tvö þús­und íbúð­ir, en það hefur tryggt sér kaup á 340 nýjum íbúðum á þessu ári. 

Auglýsing

Vaxta­ber­andi skuldir félags­ins eru tæp­lega 35 millj­arðar króna og eigið fé þess 17,6 millj­arð­ar. Eig­in­fjár­hlut­fallið er 31,4 pró­sent.

Guð­brandur Sig­urðs­son, for­stjóri Heima­valla, segir í til­kynn­ingu að fjár­hagur félags­ins sé sterk­ur. „Ég er sáttur við rekstr­ar­nið­ur­stöðu félags­ins á árinu 2017. Félagið hefur vaxið hratt og tekið yfir stór og krefj­andi leigu­söfn sem hefur gengið vel að sam­þætta annarri starf­semi félags­ins. Rekst­ur­inn styrkt­ist veru­lega á síð­asta ári sem sést best á því að mán­að­ar­leg velta hækk­aði úr 230 millj­ónum króna á fyrsta árs­fjórð­ungi 2017 í 290 millj­ónir króna á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins. Þessi veltu­aukn­ing skil­aði sér í bættum rekstri og afkomu. Við teljum okkur í góðri stöðu fyrir fyr­ir­hug­aða skrán­ingu félags­ins í Kaup­höll. Við horfum bjart­sýn fram á veg­inn. Það er mik­il­vægt að geta boðið nýjar lausnir og val­kosti eins og staðan er á hús­næð­is­mark­aði í dag. Við erum mark­visst að byggja upp leigu­markað þar sem fólk getur reitt sig á örugga lang­tíma­leigu eins og þekk­ist í nágranna­löndum okk­ar. Þannig viljum við stuðla að fjöl­breytt­ari og stöðugri hús­næð­is­mark­aði á Ísland­i. Áherslur félags­ins verða þar sem þörfin er mest, þar á meðal íbúðir fyrir eldri borg­ara, en við erum einnig að skoða leiðir til að koma á markað litlum hag­kvæmum leigu­í­búðum sem mikil þörf er fyrir um þessar mund­ir,“ segir Guð­brand­ur.

Hluti af þeim 340 íbúðum sem koma til afhend­ingar hjá Heima­völlum á þessu og næsta ári eru sér­hann­aðar fyrir eldri borg­ara, segir í til­kynn­ing­unni. „Þetta er nýj­ung hjá Heima­völlum til að bregð­ast við þörf á fjöl­breytt­ari úrræðum í hús­næð­is­málum fyrir þennan ald­urs­hóp,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Ann­ars vegar er um að ræða 58 íbúðir í tveimur fjöl­býl­is­húsum við Boða­þing í Kópa­vogi, í nágrenni við þjón­ustu fyrir eldri borg­ara á vegum Hrafn­istu og Kópa­vogs­bæj­ar. Hins vegar er um að ræða átján íbúða fjöl­býl­is­hús fyrir eldri borg­ara við Jað­ar­leiti, á nýjum bygg­ing­ar­reit sunnan við Útvarps­húsið í Efsta­leiti.

Þá hafa Heima­vellir fjár­fest í 164 íbúðum í nýju hverfi við Hlíð­ar­enda og kemur félagið þar til móts við stóran hóp fólks sem hefur áhuga á að kom­ast í öruggt leigu­hús­næði mið­svæðis í Reykja­vík. Gert er ráð fyrir að íbúð­irnar verði til­búnar til afhend­ingar á árinu 2019. Alls verða um sex hund­ruð íbúðir á svæð­inu og er mark­mið skipu­lags­ins „að skapa hverfi með borg­ar­brag, með fjöl­breytni í húsa­gerð, stórum sam­eig­in­legum inn­görðum og iðandi mann­líf­i,“ að því er segir í til­kynn­ingu.

Einnig eru að koma til afhend­ingar 47 íbúðir við Eini­velli í Hafn­ar­firði. Um er að ræða góðar fjöl­skyldu­í­búðir í barn­vænu og vin­sælu hverfi. Þá verður fram­hald á verk­efni sem hófst í fyrra að breyta setu­stofum í fast­eignum Heima­valla á Ásbrú í stúd­íó­í­búð­ir. Í fyrra var 51 íbúð stand­sett en gert er ráð fyrir að þetta verk­efni muni skila félag­inu 36 nýjum stúd­íó­í­búðum til við­bótar næsta sum­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent