Íslenska ríkið á tæplega 640 milljarða í þremur fyrirtækjum

Íslenska ríkið á Íslandsbanka 100 prósent en Landsbankann rúmlega 98 prósent. Eignir Landsvirkjunar eru nú metnar á yfir 450 milljarða króna.

Fjármálaráðuneytið
Auglýsing

Heild­ar­eignir rík­is­bank­anna Íslands­banka og Lands­bank­ans nema sam­an­lagt 2.229 millj­örðum króna miðað við upp­gjör þeirra fyrir  árið 2017.

Sé miðað við bók­fært eigið fé þeirra þá er virðið nú 427,2 millj­arðar króna. Eigið fé Lands­bank­ans er 246,1 millj­arður króna og eigið fé Íslands­banka 181,1 millj­arður króna.

Þetta eru verð­mæt­ustu fyr­ir­tækja­eignir sem íslenska ríkið á, ásamt Lands­virkj­un.

Auglýsing

Til sam­an­burðar þá nemur eigið fé Lands­virkj­unar rúm­lega tveimur millj­örðum Banda­ríkja­dala, sam­kvæmt upp­gjöri fyrir árið 2017, eða sem nemur um 210 millj­örðum króna. 

Sam­an­lagt er virði eign­ar­hluta rík­is­ins í þessum þremur fyr­ir­tækj­um, ef miðað er við bók­fært eigið fé, um 637 millj­arðar króna. 

Í til­felli Lands­virkj­unar er lík­legt að virðið sé mun meira, en sem nemur bók­færðu eig­ið. Sé miðað við tvö­falt bók­fært eigið fé, þá er virði hlutar rík­is­ins í Lands­virkjun um 420 millj­arðar króna.

Útlit er fyrir að arð­greiðslur fyr­ir­tækj­anna til rík­is­ins vegna árs­ins í fyrra muni skipta tugum millj­arða. Fyrir aðal­fundi Lands­bank­ans liggur fyrir til­laga upp á 15,4 millj­arða króna, og gera má ráð fyrir millj­arða argreiðslum til rík­is­ins frá bæði Íslands­banka og Lands­virkj­un. 

Sam­þykkt var á aðal­fundi Íslands­banka í fyrra að greiða 10 millj­arða í arð til rík­is­ins og er gert ráð fyrir 13 millj­arða arð­greiðslu nú.

Hjá Lands­virkjun er útlit fyrir að fyr­ir­tækið geti farið að greiða 10 til 20 millj­arða í arð á ári til rík­is­ins á næstu árum, en efna­hagur fyr­ir­tæk­is­ins hefur styrkst jafnt og þétt á und­an­förnum árum, með nið­ur­greiðslu skulda og vax­andi tekj­um. Þær námu í fyrra 491 milljón Banda­ríkja­dala, eða sem nemur tæp­lega 50 millj­örðum króna.

Heild­ar­eignir Lands­virkj­unar hafa líka aldrei verið meiri, en þær námu 4,5 millj­örðum Banda­ríkja­dala í lok árs í fyrra, eða sem nemur ríf­lega 450 millj­örðum króna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent