Bankasýsla ríkisins gerir tillögu um að ríkið selji hlut sinn í Arion

Íslenska ríkið mun selja hlut sinn í Arion banka á 23,4 milljarða króna. Verðið er í samræmi við kaupréttarákvæði sem sett var í hluthafasamkomulag árið 2009.

arion-banki-4_9954305546_o.jpg
Auglýsing

Banka­sýsla rík­is­ins sendi í dag til­lögu til Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um að ríkið ætti að selja Kaup­skil­um, dótt­ur­fé­lagi Kaup­þings ehf., 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka á 23,4 millj­arða króna. Um er að ræða nýt­ingu á kaup­rétti Kaup­þings sam­kvæmt hlut­hafa­sam­komu­lagi sem gert var árið 2009 þegar ríkið lagði Arion banka til 9,8 millj­arða króna gegn því að fá umræddan eign­ar­hlut. Ríkið hafði til 21. febr­úar að taka til­boði Kaup­þings en líkt og Kjarn­inn hefur áður greint frá þá gat ríkið ekki hafnað því. Um var að ræða ein­hliða rétt til að nýta sér kaup­rétt­inn.

Þetta er stað­fest í frétt á vef Banka­sýslu rík­is­ins, Þar sem segir að það sé nið­ur­staða hennar að „Kaup­skil ehf. hafi ein­hliða, ótví­ræðan og for­taks­lausan samn­ings­bund­inn rétt til að kaupa hlut íslenska rík­is­ins í Arion banka hf. á grund­velli fyrr­greinds hlut­hafa­sam­komu­lags. Í hlut­hafa­sam­komu­lag­inu kom fram hvernig kaup­rétt­ar­verðið skyldi reiknað út. Und­ir­liggj­andi for­sendur voru að rík­is­sjóður skyldi ávaxta upp­haf­legt hluta­fjár­fram­lag (áskrift­ar­verð) sitt til bank­ans miðað við til­tekna vexti, 5 pró­sent áhættu­á­lag og ára­fjölda.

Auglýsing

Stofn­unin hefur yfir­farið útreikn­ing á kaup­rétt­ar­verð­inu og fengið stað­fest­ingu Grant Thornton á því. Nið­ur­staðan er að kaup­rétt­ar­verð, miðað við upp­gjör þann 21. febr­úar nk., er  23.422.585.119 kr. sem er sama verð og birt­ist í til­kynn­ingu Kaup­skila ehf. um nýt­ingu kaup­rétt­ar­ins.“

Hægt er að lesa til­lögu Banka­sýsl­unnar í heild sinni hér.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent