Píratar vilja opna nefndarfundi Alþingis

Píratar mæltu í dag aftur fyrir frumvarpi um opna fundi hjá fastanefndum Alþingis. Segja það geta stuðlað að betri innsýn í forsendur lagasetningar og umræðu meðal fjölmiðla og almennings um þingmál.

Frá opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Frá opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Auglýsing

Píratar leggja fram frum­varp um opna nefnd­ar­fundi. Í frum­varp­inu er boðuð breyt­ing á lögum um þing­sköp, þannig að nefnd­ar­fundir Alþingis verði að jafn­aði haldnir í heyranda hljóði með ákveðnum und­an­tekn­ing­um.

Þannig verði hægt að halda fundi nefnda fyrir luktum dyrum ef fjalla á um gögn eða upp­lýs­ingar sem nefnd tekur við í trún­aði, ef starfs­menn Stjórn­ar­ráðs­ins koma fyrir þing­nefnd, ef gestur sem kemur fyrir nefnd óskar eftir því eða ef ræða skal mál sem verðar þjóðar­ör­yggi eða mik­il­væga hags­muni Íslands sem leynt þurfa að fara.

Helgi Hrafn mælti fyrir frum­varp­inu í dag, en þing­flokkur Pírata stendur allur að mál­inu. Helgi Hrafn hefur ítrekað talað fyrir því að þessar breyt­ingar verði gerðar á störfum þings­ins. Hann vakti nokkra athygli fyrir það á þar síð­asta þing­vetri þegar hann kom fyrst inn á þing að enda allar ræður sínar á orð­unum „að lokum legg ég til að nefnd­ar­fundir Alþingis verði hér eftir öllum opn­ir,“ og vís­aði þar í Róm­verj­ann Cató gamla sem end­aði allar sínar ræður í öld­unga­ráð­inu með því að leggja til að Karþagó yrði lögð í eyði. Helgi upp­skar nokkurn hlátur í þing­sal þegar hann sneri aftur á þing í des­em­ber síð­ast­liðnum og hélt upp­teknum hætti, þegar hann lauk fyrstu ræðu sinni um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra með sömu orð­um.

Auglýsing

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að stór hluti lög­gjaf­ar­ferl­is­ins felist í nefnd­ar­fundum fasta­nefnda Alþing­is. Fundir nefnd­anna séu að jafn­aði lok­aðir þótt oft komi þar fram gagn­legar upp­lýs­ingar um ein­staka þætti þing­máls sem geti verið gang­legir í almennri umræðu og við umfjöllun fjöl­miðla. „Breyt­ing þing­skapa á þá leið að fundir fasta­nefnda Alþingis yrðu að jafn­aði opnir mundi veita betri inn­sýn í þær for­sendur sem liggja að baki laga­setn­ingu og til­lögum Alþingis og gera fjöl­miðlum og almenn­ingi betur kleift að fylgj­ast með þing­störf­um,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þannig sé frum­varp­inu ætlað að stuðla að því að fjöl­miðlaum­fjöllun og umræða meðal almenn­ings geti farið fram sam­hliða nefnd­ar­störfum en ekki ein­ungis eftir að nefnd hefur afgreitt mál og tekið það til umræðu í þing­sal að nýju. Slíkt fyr­ir­komu­lag myndi veita almenn­ingi og öðrum hags­muna­að­ilum færi á því að koma á fram­færi athuga­semdum og ábend­ingum áður en mál væri komið á loka­stig þing­legrar með­ferð­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent