Taconic Capital með bein og óbein yfirráð í Arion banka

Bandarískur vogunarsjóður er með næstum helming hlutafjár í Kaupþingi, sem er stærsti eigandi Arion banka.

arion-banki-4_9954305546_o.jpg
Auglýsing

Banda­ríski vog­un­ar­sjóð­ur­inn Taconic Capital, sem á 9,99 pró­senta hlut í Arion banka, bætti tals­vert við eign­ar­hlut sinn í Kaup­þingi í fyrra – fór úr 38 pró­sentum í tæp­lega 46 pró­sent – en sjóð­ur­inn er sem fyrr lang­sam­lega stærsti hlut­hafi eign­ar­halds­fé­lags­ins. 

Frá þessu eru greint í Mark­aðnum í dag, en Fjár­mála­eft­ir­litið mat sjóð­inn hæfan til að fara með virkan eign­ar­hlut í Arion banka í sept­em­ber í fyrra.

Frank Brosens, stærsti eigandi og stjórnandi Taconic Capital. Eignir sjóðsins nema meira en 7,7 milljörðum Bandaríkjadala, eða sem nemur tæplega átta hundruð milljörðum króna.Vog­un­ar­sjóð­ur­inn er með beint og óbeint eign­ar­hald í Arion banka, sem stærsti hlut­hafi Kaup­þings, sem nemur um 36 pró­sent­um, eða vel ríf­lega þriðj­ungi. Stjórn­andi sjóðs­ins og stærsti eig­andi, Frank Bros­ens, hefur talað um áhuga sinn á fjár­fest­ingum á Íslandi, og sagði hann í við­tali við Frétta­blaðið að hann teldi fram­tíð­ar­horfur efna­hags­mála á Ísland góðar og í þeim felist spenn­andi fjár­fest­inga­kostur.

Auglýsing

Heild­ar­eignir Kaup­þings námu um 230 millj­örðum í lok þriðja árs­fjórð­ungs 2017 en þar mun­aði mest um 57 pró­senta eign­ar­hlut félags­ins í Arion banka sem var þá met­inn á lið­lega 98 millj­arða, að því er fram kemur í Mark­aðn­um.

Sem kunn­ugt er hefur Banka­sýsla rík­is­ins ráð­lagt rík­inu að selja hlut sinn í Arion banka, 13 pró­sent, á 23,4 millj­arða króna. Byggja við­skipti á kaup­rétti á hlutn­um, sem taka mið af fyrr­nefndu verði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent