Norsk Hydro gerir tilboð í álverið í Straumsvík

Risafyrirtæki sem er að mestu leyti í eigu norska ríkisins og norska olíusjóðsins hefur gert tilboð í álverið í Straumsvík og eignarhluti í tveimur öðrum álverum Rio Tinto. Tilboðið í heild er upp á tæpa 35 milljarða króna.

álverið í straumsvík
Auglýsing

Norska fyr­ir­tækið Norsk Hydro ASA hefur gert skuld­bind­andi til­boð um að kaupa álverið í Straums­vík af núver­andi eig­anda þess, Rio Tinto. Í frétta­til­kynn­ingu á heima­síðu Norsk Hydro segir að í til­boð­inu felist að kaupa allt hlutafé í íslenska álver­inu, 53 pró­sent hlut í hol­lenskri verk­smiðju Rio Tinto og helm­ings hlut í sænskri verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins. Til­boðið í allan pakk­ann hljóðar upp á 345 millj­ónir dali, eða 34,7 millj­arða króna.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Svein Ric­hard Brand­tzæg, for­stjóri Norsk Hydro, að til­boðið end­ur­spegli mikla trú fyr­ir­tæk­is­ins á álf­ram­leiðslu. Eft­ir­spurn eftir því sé að vaxa meira en eftir nokkrum öðrum málmum á heims­vísu.

Norsk Hydro er eitt stærsta álfyr­ir­tæki í heimi. Norska ríkið á 43,8 pró­sent hlut í því og norski olíu­sjóð­ur­inn á auk þess 6,5 pró­sent hlut. Hjá fyr­ir­tæk­inu starfa um 13 þús­und manns. Hluta­bréf Norsk Hydro eru skráð í kaup­höll­inni í Osló.

Auglýsing

Rann­veig Rist, for­stjóri álvers­ins í Straums­vík, greindi starfs­mönnum sínum frá því á fundi í sept­em­ber í fyrra að Rio Tinto, eig­andi þess, væri að end­ur­skoða eign­ar­hald sitt á álver­inu. Afkoma álvers­ins hefur verið slök und­an­farin ár og umtals­vert tap hefur verið á rekstr­in­um.

Ket­ill Sig­ur­jóns­son, orku­sér­fræð­ing­ur, fjall­aði ítar­lega um mögu­lega sölu álvers­ins í grein á Kjarn­anum í kjöl­far­ið. Þar sagði hann að þó svo að álverið í Straum­s­vík sé nú minnsta álverið á Íslandi sé Straum­s­vík­­­ur­verið geysi­­lega mik­il­vægur við­­skipta­vinur fyrir Lands­­virkjun. Álverið notar um fjórð­ung af allri þeirri raf­­orku sem Lands­­virkjun fram­­leiðir en skilar Lands­­virkjun um þriðj­ungi af öllum sölu­­tekjum fyr­ir­tæk­is­ins. Þar með megi segja að álverið í Straum­s­vík sé mik­il­væg­­asti við­­skipta­vinur Lands­­virkj­un­­ar.

Núgild­andi raf­­orku­­samn­ingur álver­s­ins og Lands­­virkj­unar gildir til 2036, en end­­ur­­skoð­un­­ar­á­­kvæði um raf­­orku­verðið verður virkt 2024. Straum­s­vík­­­ur­verið er nú að greiða lang­hæsta orku­verðið af öllum álver­unum hér, enda með nýjasta samn­ing­inn (nýr samn­ingur Lands­­virkj­unar og Norð­­ur­áls verður ekki virkur fyrr en 2019). Raf­­orku­verðið sem Straum­s­vík­­­ur­verið greiðir er samt ekk­ert mjög hátt í alþjóð­­legu sam­hengi, að sögn Ket­ils.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent