Ferðamálastofa fær að leggja á dagsektir

Ferðamálastofa fær að leggja dagsektir á fyrirtæki í ferðaþjónustu sem ekki fara að ákvörðunum sem teknar hafa verið á grundvelli laganna, eða stunda leyfis- eða skráningarskylda starfsemi án viðeigandi leyfis eða skráningar í nýju frumvarpi.

ferðamenn við Seljalandsfoss
Auglýsing

Ferða­mála­stofa fær heim­ildir til að leggja dag­sektir á fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu sam­kvæmt nýju frum­varpi til laga um Ferða­mála­stofu, ferða­mála­ráð og leyf­is­veit­ingar í ferða­þjón­ustu sem atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur birt og óskað eftir umsögnum um.

Í frum­varp­inu er lagt til að Ferða­mála­stofu verði veittar heim­ildir til að beita aðila, sem ekki fara að ákvörð­unum sem teknar hafa verið á grund­velli lag­anna, eða stunda leyf­is- eða skrán­ing­ar­skylda starf­semi án við­eig­andi leyfis eða skrán­ing­ar, dag­sektum þar sem farið verði að henni eða starf­semi skráð á full­nægj­andi hátt. Með dag­sektum verður henni þannig kleift að þvinga aðila til að fara að ákvæðum lag­anna, til dæmis varð­andi leyf­is­skyldu og skrán­ingu, gerð örygg­is­á­ætl­ana og fleira. Ekki er hins vegar lagt til að svo stöddu að Ferða­mála­stofa fái heim­ild til að beita stjórn­valds­sekt­um.

Ferða­mála­stofa mun eftir sem áður geta fellt niður leyfi aðila.

Auglýsing

Frum­varpið felur að öðru leyti í sér nýja lög­gjöf um Ferða­mála­stofu, ferða­mála­ráð og leyf­is­veit­ingar í ferða­þjón­ustu sem ætlað er að standa sjálf­stæð en til hliðar við lög um pakka­ferðir og sam­tengda ferða­til­högun sem hefur einnig verið lagt fram. Helstu breyt­ingar frá gild­andi lögum snúa að stjórn­sýslu mála­flokks­ins, breyt­ingu á hlut­verki Ferða­mála­stofu, skyldu ferða­þjón­ustu­að­ila til að setja sér örygg­is­á­ætl­un, dag­sekt­ar­heim­ild­inni og flutn­ingi ákvæða yfir í lög um pakka­ferðir og sam­tengda ferða­til­hög­un.

Í frum­varp­inu er þannig lagt til að lög­fest verði skylda ferða­þjón­ustu­að­ila sem bjóða upp á skipu­lagðar ferðir að útbúa örygg­is­á­ætlun í sam­ræmi við til­lögur sem fram koma í skýrsl­unni. Áður hefur verið lagt til að slík skylda verði lög­fest. Örygg­is­á­ætlun skal vera með ákveðnum hætti og inni­halda m.a. við­bragðs­á­ætlun og er lagt til að ráð­herra setji nán­ari fyr­ir­mæli í reglu­gerð um hvað koma skuli fram í örygg­is­á­ætl­un. Mark­miðið er að auka öryggi ferða­manna sem hingað koma í skipu­lagðar ferðir eða kaupa slíka ferða­þjón­ustu inn­an­lands. Þannig er gert ráð fyrir að ferða­þjón­ustu­að­ili þurfi að útbúa örygg­is­á­ætlun fyrir sér­hverja teg­und ferðar þar sem lagt er mat á helstu áhættu­þætti ferð­ar­inn­ar, við­brögð við hugs­an­legri vá og áætlun um hvernig skuli brugð­ist við ef eitt­hvað fer úrskeið­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent