Sýslumaður hafnar kröfu um kyrrsetningu eigna Valitor

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur hafnað kyrrsetningarkröfu Datacell og Sunshine Press Productions á eignum Valitor.

Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors.
Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors.
Auglýsing

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hafnað kyrr­setn­ing­ar­kröfu Datacell og Suns­hine Press Prod­uct­ions (SPP) á eignum Valitor. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Sam­kvæmt henni kemur ákvörð­unin ekki óvart enda telur Valitor að kyrr­setn­ing­ar­krafan hafi ekki átt við rök að styðj­ast.

Datacell og Suns­hine Press Prod­uct­i­ons, sem önn­uð­ust rekst­ur greiðslu­gátt­ar fyr­ir Wik­i­­leaks, hyggj­­ast fara í skaða­bóta­­mál gegn Valitor vegna þess að fé­lagið ákvað ein­hliða og án fyr­ir­vara að loka gátt­inni árið 2011. Fyr­ir­tæk­in fóru fram á að sýslu­mað­ur­­inn kyrr­­setti eign­ir Valitors fyr­ir sex og hálf­­an millj­­arð króna. Frá þessu er greint í frétt mbl.is

Auglýsing

Segir jafn­framt í til­kynn­ing­unni að vert sé að benda á að langstærstur hluti krafna fram­an­greindra félaga á hendur Valitor, eða um 95 pró­sent, sé krafa SPP sem er að lang­mestu leyti í eigu Julian Assange, auk nokk­urra Íslend­inga.

„Það félag hefur aldrei átt í neinu við­skipta­sam­bandi við Valitor. Auk þess hefur félagið aldrei haft nema hverf­andi tekjur en gerir samt millj­arða kröfur á hendur fyr­ir­tæk­inu. Valitor hefur frá upp­hafi talið að eng­inn grund­völlur sé fyrir kröfu­gerð SPP og hefur því ítrekað hafnað henni. Auk þess er vert að minna á að eng­inn dómur hefur fallið um kröfu­gerð SPP.

Í hnot­skurn snýst mála­til­bún­aður Datacell og SPP um að Valitor hafi valdið þeim tjóni með riftun árið 2011 á samn­ingi um greiðslu­gátt sem gerði félög­unum kleift að taka á móti greiðslum í gegnum inter­net­ið. Hugð­ist Datacell nýta gátt­ina til fjár­söfn­unar í þágu Wiki­leaks sam­tak­anna með milli­göngu SPP. Því fór þó fjarri að allar bjargir væru bann­aðar með lokun gátt­ar­innar enda bentu félögin sjálf á nokkrar aðrar leiðir að gefa fé til Wiki­leaks. Auk þess var á vef­síðu sam­tak­anna allan þann tíma sem greiðslu­gáttin var lokuð vísað til fjöl­margra ann­arra greiðslu­leiða, s.s. með raf­mynt, milli­færslum á banka­reikn­ing og með Payp­al. For­svars­maður Wiki­leaks hefur greint frá því að sam­tökin hafi ekki orðið fyrir tjóni vegna lok­un­ar­innar heldur stór­grætt, þar sem þau hafi orðið að taka við bitcoin gjald­miðl­inum þess í stað, en verð­mæti hans hefur auk­ist um 50.000 pró­sent síðan þá.

Wiki­leaks hefur meira að segja greint frá því opin­ber­lega að raf­mynt­irnar bitcoin og litecoin hafi verið helsta fjár­mögn­un­ar­leið þeirra á þeim tíma sem greiðslu­gátt Valitor var opin. Þessu til við­bótar má benda á að á þriðja hund­rað evr­ópskir færslu­hirðar veita áþekka þjón­ustu og Valitor. Þannig er enn alger­lega óút­skýrt af hálfu þess­ara félaga hvernig það geti valdið þeim margra millj­arða tjóni að ein greiðslu­leið af mörgum lok­ist tíma­bundið og verður kröfu­gerðin á hendur Valitor að skoð­ast í því ljósi,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent